Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Alþingi hefur um tvennt að velja.

Morgundagurinn verður bestur!

Auðun Gíslason skrifaði þann 3. október 2010 kl. 16:04

Nú set ég eftirfarandi fram í nafni Morgundagsins:  Alþingi hefur um tvennt að velja. Að fara að kröfum þjóðarinnar, sem kristallast ágætlega í nýjasta útspili Framsóknarflokksins (sic). Hinn kosturinn er, að Alþingi verði sett af í blóðugri uppreisn!Hugmyndir mínar að kröfum á hendur Alþingis:

1. Að heimilunum verði bjargað úr þeirri skuldakreppu sem þau eru í, og stafar af verðbólgu áranna 2008-2009, og gengisfallinu. Uppboðin verði stöðvuð þegar í stað. Afskriftir verðtryggðra lána um 20-30%. Gengislánin verði sett á sanngjarna vexti. Núverandi lausn er ekki sanngjörn.

2. Atvinnulífinu verði komið til bjargar úr sömu skuldakreppu, og því hjálpað til að komast af stað. Að viðbættum sömu úrræðum og fyrir heimilin þarf að leysa bankana undan þeim lánahemli sem er í SÍ. Endurreisn atvinnulífsins byggist ekki á stóriðju í eigu útlendra auðhringja!

3. Verðlag í landinu verði rannsakað. það er gersamlega óskiljanlegt,ef miðað er við verðlag í nágrannaríkjunum, t.d. Bretlandi (þá miða ég ekki við verðlag í "fínu" götunum í London. Og ekki við verðlag í lúxussjobbum. Hvað er álagningin orðin há hér á landi? 100-200%?

4. Skilanefndir bankanna verði leystar frá störfum. Bankasýsla ríkisins verði endurskipulögð. Bankarnir starfi á forsendum þjóðarinnar og þjóni þjóðfélaginu! Bankasýsla ríkisins sjá til þess eftir endurskipulagningu hennar!

5. Umboðsmaður skuldara starfi fyrir skuldara, en ekki á forsendum lánastofnana!

6. Umboðsmaður barna gæti mannréttinda barna, sem nú eru þverbrotin með því að þau eru gerð heimilislaus. Á Íslandi eru börn, sem fara svöng í háttinn á kvöldin! Ekkert heyrist í svokölluðum umboðsmanni barna!Þetta er einhver mest skömm sem hvílir á íslensku samfélagi í dag.

7.  Tilboðsleiðin verði sú leið sem valin verður við endurskoðun á skipulagi fiskveiða við Íslandsstrendur.  Handfæraveiðar verði gerðar frjálsar!

8.  Skattleggja verður innistæður séreignarlífeyrissjóða og inngreiðslur eftir það.

Svona mætti halda lengi áfram, en ég hef í bili lagt fram mínar kröfur. Og mun halda því áfram, og er fullkomlega tilbúin að mæta ofbeldi valdatækis yfirstéttarinnar, lögreglunnar. NIÐUR MEÐ AUÐVALDIÐ!-LIFI BYLTINGIN!

 

 


Hópmálsókn Samtaka lánþega.

Vondandi að Samtök lánþega ráði ekki Gísla Baldur Garðarson til starfa fyrir sig.  Hverjum dettur annars í huga að ráða hann sem lögfræðing í máli gegn auðvaldsbatteríi.  Gísli Baldur er innmúraður og gegnheill....

http://mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/#  Skoðið undir:  Annar rökstuðningur.


mbl.is Á þriðja hundrað í hópmálssókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú skulum við bara fleygja Skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis á haugana!

Það er alveg greinilegt, að stór hluti stjórnmálamanna, álitsgjafa og bloggara vill ekkert gera með niðurstöður Rannsóknarnefndar Alþingis.  Það sést best á umræðunni um niðurstöður Atla-nefndarinnar og Landsdóminn.  Umræðan um lögin um Landsdóminn eru á sömu nótum og um neitunarvald forsetans í kringum fjölmiðlalögin fyrri.  Þá vildu sumir túlka stjórnarskránna eftir sínum hentugleika.  Sama á við um lögin um Landsdóminn nú.  Enginn, endurtek enginn, hafði áður gert þessar athugasemdir um lögin!  Þau voru síðast endurbætt 2008 og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins útnefndi nýjan fulltrúa sinn í hann síðastliðinn vetur!

Rannsóknarnefnd Alþingis komst að ákveðinni niðurstöðu um vanrækslu og afglöp stjórnmálamanna og embættismanna.  Og það komu líka vísbendingar um hina og þessa vafasama fjármálagerninga.  Nú vill enginn gera neitt með þessar niðurstöður og reyndar túlka þær eftir sínum hentugleika!  Engin skal sæta ábyrgð.  Enginn kannast við ábyrgð.  Enginn gerði neitt rangt.   Engin vanræksla og engin afglöp.  Hér var sem sagt allt í lagi, þangað til að ó,ó, það varð hrun.  Það er engum að kenna, ekki innanlands altént, nema kannski Sigurði Einarssyni og Sigurjóni Árnasyni. Og þeir búa í útlöndum.  Hér varð allt vitlaust, þegar Sérstakur Saksóknari vogaði sér að handtaka nokkra grunaða fjármálaafglapa!  Hvílíkur dónaskapur, sögðu menn!  Vildu að Sérstakur biði hinum virðulegu fjármálamönnum í létt spjall yfir kaffi og vínarbrauði, og kannski líka rjómatertu!  Ofan á allt fékk hann Interpól til að gefa út handtökuskipun á einn, sem mátti ekki vera að því að mæta í kaffisopann og vínarbrauðið!  Hvílík ósvífni!  Rekum bara Sérstakan!  Við skulum sko ekki benda fingri á neinn, ekki einn!

Við skulum ekki persónugera, sagði Geir!  Hér var þjóðlífið sokkið upp fyrir eyru í spillingu og siðleysi!  Stjórnmála- og embættismenn vanræktu skyldur sínar við þjóðina!  Nú virðist bara allt hafa verið í lagi!  Við skulum bara ekki persónugera eitt né neitt.  Og við skulum bara trúa því, að hér hafi ekki verið nein spilling eða siðleysi, einsog við gerðum áður.  Við skulum bara öll vera góð!

Hér gerði enginn neitt af sér, nema kannski einn eða tveir glaumgosar, Jón Ásgeir og Björgólfur Thor!  Að öðru leyti erum við öll jafn saklaus og með tandurhreina samvisku, líkt og nýborið Jésúbarnið.  Hér hefur enginn gert neitt af sér, nema helst núverandi ríkisstjórn og svo þessi Atli þarna!

Þessvegna þarf ekki að kalla neinn til ábyrgðar og ekkert uppgjör að fara fram.  Og enginn siðbót þarf að verða vegna þess að siðferð okkar hefur alltaf verið svo himinhrópandi gott!  Alltaf og á öllum sviðum!

Sem sagt:  Við skulum bara fleygja Skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis á haugana!  Við erum fín einsog við höfum alltaf verið, nema kannski Steingrímur og svo þessi Atli þarna!

Ekkert siðleysi, engin afglöp né fjármálaglæpir hafa nokkur tíma átt sér stað á Íslandi, stórasta landi í heimi!  Við erum best!  Svo góð, siðsöm og heiðarleg!


mbl.is Krafan byggir á vanþekkingu Ólafar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsagt að rannsaka, en þá þarf að rannsaka frá upphafi málsins til dagsins í dag!

Sjálfstæðismenn tala  gjarnan um Icesave-málið einsog það hafi dottið af himnum ofan 1. febrúar 2009 eða jafnvel að Steingrímur hafi uppdiktað þetta alltsaman af illkvittni sinni!  Ef rannsaka á Icesave málið þarf að taka  saman á einn stað allan feril málsins.  Hvernig staðið var að stofnun þessara reikninga, alla sögu þeirra fram að hruni.  Síðan þarf að rannsaka hvernig Árni Matt., Ingibjörg Sólrún,  Geir H. og Davíð meðhöndluðu málið eftir hrunið í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde.  Þá þarf að meta í hvaða stöðu málið var við stjórnarskiptin.  Það er reyndar mjög áríðandi.  Þriðji þátturinn er svo, hvernig ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms hafa tæklað það.  Og þá þarf líka  að hafa í huga aðkomu stjórnarandstöðunnar.  Það er nefnilega sitthvað hvernig menn tala á þingfundum og svo í þingnefndum!

Sjálfstæðismenn vilja aðeins rannsaka þátt Steingríms og Jóhönnu, en tala ekki um eigin afglöp í málinu!  En það þarf að fá alla sögu þess uppá yfirborðið! 


mbl.is Vilja sérstaka Icesave-rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er íslenska ríkið orðið bótaskylt gagnvart neytendum?

Árið 2001 setti Alþingi lög um vexti og verðtryggingu (minnir mig að lögin séu kölluð).  Þar kemur skýrt fram að óheimilt er að tengja lán í íslenskum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla.  Síðan þá hafa lánastofnanir lánað á þessum forboðnu kjörum.  Hæstiréttur Íslands dæmdi lánin ólögmæt í samræmi við lögin.  Nú hefur Hæstiréttur kveðið upp dóm sem verndar lögbrjótana gegn tapi og skellir tjóninu frekar á lántakendur.  Í trássi við Neytendalög og tilskipun ESB.  Við fyrri dómnum varð ljóst að eftirlitsstofnanir, sem starfa á vegum ríkisins og á ábyrgð þess, brugðust þeirri skyldu sinni að stöðva ólögmæta starfsemi fjármálafyrirtækjanna.  Því liggur beinast við að dæma verði ríkissjóð til að bæta lántakendum tjónið sem þeir hafa hugsanlega orðið fyrir vegna vanrækslu stofnana ríkisins og hins nýja dóms Hæstaréttar Íslands!


Er maðurinn eitthvað ruglaður?

Öll gengistryggð lán í íslenskum krónum hafa verið ólögmæt síðan 2001.  Þarf eitthvað að setja ný lög um það.  Þarf ekki að fara að rannsaka heilabúin hjá stjórnmálastéttinni í heild?  Allir sem eru læsir geta séð það af því einu að lesa lögin.  Nú er það bara spurningin hvort íslenska ríkið er ekki bótaskylt gagnvart lántakendum!
mbl.is Frumvarp um að gengistryggð lán verði ólögmæt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að berja höfðinu við steininn!

Á alþingi að stofna til atvinnureksturs fyrir Suðurnesjamenn?  Þeir eru að sögn Ásmundar búnir að spandera 40 milljörðum í Helguvíkur-ævintýrið.  Gátu ekki beðið eftir að athugað væri með orku, hvort hún væri fyrir hendi yfirleitt, gátu ekki beðið eftir að lagaskyld ferli væru kláruð, byrjuðu að byggja höfn og heimta nú meiri peninga úr ríkissjóði í höfnina.  En gleyma því að hafnir eru ekki lengur á vegum ríkissjóðs heldur sveitafélaga.  Það hefði verið hægt að setja af stað ansi mörg meðalstór og smá fyrirtæki í hinum ýmsu greinum fyrir þessa 40 milljarða!  Það er fjöldi fólks með allskyns hugmyndir um atvinnurekstur, sem henta smárekstri, en vantar aðstöðu og peninga!  En alltaf er hugmyndaauðginni takmörk sett af einblíni atvinnupólitíkusa á stóriðju!  Sem skilar litlu nema skuldum fyrir orkufyrirtækin, sveitafélögin og ríkissjóð.

Hvernig stendur á þessum endalausu vandræðum Suðurnesjamanna í atvinnumálum?  Sem hófust nota bene ekki við Hrunið, heldur eiga sér áralanga hörmungarsögu!  Hvað varð t.d. af sjávarútvegi á svæðinu?  Er enginn smáiðnaður þarna?  Eru engin tækifæri í ferðamannaiðnaði með þennan stórkostlega og einstaka Reykjanesfólksvang sem dæmi?  Nú þegar loksins fer að hylla undir beina vegatengingu við Suðurland með Suðurstrandarvegi, eru enginn tækifæri fólgin í því?  Í móttöku ferðamanna og þjónustu við þá. O.s.frv. 


mbl.is Vill athafnir í stað orða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin hreina samviska íslensku þjóðarinnar!

Hin hreina samviska íslensku þjóðarinnar...situr m.a. á Alþingi. Prinsipplaus og siðlaus og vorkennir sjálfri sér...Íslensk lög fara ekki bara í manngreiningarálit, heldur eru þau líka flokkspóitísk! Svo segir hin hreina samviska íslensku þjóðarinnar! Það er ekki nema von, að hér hafi ALLT farið til andskotans og sé þar enn...Satans helvítis fokking fokk!

3,5 milljón Bandaríkjamanna starfar í hergagnaiðnaði.

Sjálfsagt eru fjölmörg afleidd störf  tengd þessum iðnaði.  Ég var að  horfa á þátt í sænska sjónvarpinu um Víetnam-stríðið.  Þáttur þessi byggir á samtölum við Robert Mcmamara.  Mikið  skelfing var þetta sorgbitinn maður, sem von er kannski.  Við sem munum þetta stríð munum kannski, að gangur stríðsins hafði veruleg áhrif á hlutabréfamarkaðinn í Wallstreet.  Kaninn réðst inní Kambódíu og markaðurinn fór upp og niður aftur þegar þeir drógu liðið til baka sem dæmi.  Ekki liggur fyrir hve marga íbúa Indókínaskagans Bandaríkjamenn myrtu í þessari herferð sinni (Það er víst talið í milljónum en ekki hundruðum þúsunda).  Ekki frekar enn í dag, þegar þeir hafa fundið sér nýjan óvin til að halda þessum iðnaði sínum gangandi að ógleymdum olíubransanum. Á þessum tíma var stundaður öflugur áróður fyrir þessu stríði og gegn svokölluðum kommúnistum sem börðust gegn heimsvaldaofríki BNA.  Nú um stundir er óvinurinn annar og lævíslegri aðferðum beitt í áróðrinum.  Og enn eru fjölmargir sem hafa meðtekið boðskapinn líkt og í denn.  Og eru þeirrar skoðunar að sjálfsagt mál sé að myrða óbreytta alþýðu, sem er svo óheppin að búa í þeim löndum, sem Kanar telja sig þurfa að ráðast á í ábataskyni! 
mbl.is Yrðu stærstu vopnaviðskipti í sögu Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgð íslenska ríkisins á lánum vegna Icesave-innistæðnanna!

‎...það (er) mat ríkisstjórnarinnar að hagsmunum Íslands til lengri tíma litið sé best borgið með því að stjórnvöld styðji við Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta .... Gert er ráð fyrir því að þau ríki sem hlut eiga að máli muni aðstoða sjóðinn við að standa undir þessu verkefni og það verði í formi lánveitinga viðkomandi ríkja til sjóðsins með ábyrgð íslenska ríkisins.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband