Loforðin frá í fyrra!

Þrátt fyrir loforð um að nú yrði tekið til hendinni í borginni okkar, þá hefur hún nú sennlega aldrei verið subbulegri en nú! Það kosningaloforð var sem sagt fyrst til að fjúka með ruslinu.  Svona vorhreinsun hefur verið árlegur viðburður í Reykjavík um áratugaskeið!  Ekkert sem Villi litli er brautryðjandi í frekar en öðru!

Ein spuring að lokum til borgarstjóra: Hvenær verður spilavítunum við Hlemm lokað? Þú gekkst svo snöfurmannlega fram í að hrekja spilavítið burt úr þínu heimahverfi. Hvenær kemur að mínu hverfi?


mbl.is Vorhreinsun í Reykjavík hefst um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guttormur

Einmitt, sammála. Það er ekki hlúð neitt sérstaklega vel að almenningssvæðum og stendur meiraðsegja til að breyta grænum reitum í byggingarsvæði.

Varðandi spilavítismálið þá má líka spyrja hvernig fína (og síðasta óbyggða) sjávarlóðin í vesturbænum sem spilasalurinn fékk í sárabætur verði nýtt?

Guttormur, 26.4.2007 kl. 21:32

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Vonandi verður sett upp spilavíti á fínu lóðinni við Starhagann. Það hlýtur að vera feitan gölt að flá við Ægissíðuna!

Auðun Gíslason, 27.4.2007 kl. 14:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband