"Þá værum við ekki í EES..." ?????

Sérkennilegur málflutningur formanns flokks, sem á sínum tíma var á móti aðild að EES-samningnum og vildi gera tvíhliðasamning við ESB í staðinn.  Sjálfstæðisflokkurinn féllst á aðild að EES undir þvingun frá Alþýðuflokknum, sem gerði aðild að skilyrði fyrir stjórnarsamstarfi flokkanna 1991.  Það kom enda ítrekað fram hjá Davíð Oddssyni að honum finnst frelsið, sem samningurinn færði þjóðinni, ganga alltof langt!  Enda hefur samningurinn takmarkað völd stjórnmálamanna til mikilla hagsbóta fyrir land og þjóð!  Hvernig væri ástandið nú eftir 16 ára stjórnarseti Sjálfstæðisflokksins, ef Alþýðuflokkurinn hefði ekki vélað Sjálfstæðismenn til að fallast á EES-samninginn? 


mbl.is „Horfið yrði af þeirri framfarabraut sem við erum á"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

Rétt hjá þér, Hrafnkell!  Einu sinni þekkti ég mann sem bar viðurnefnið "Stóri sannleikur".  Hann sagði helst ekki satt orð! Sagnfræði og skrök  eru helstu tæki djélistamanna í kosningabaráttunni.

Auðun Gíslason, 9.5.2007 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband