Er Fox hlutlaus og réttlát? Það er Ku-Klux-Klan líka!

Fréttastöð hægriöfgasinnaðra kristinna bókstafstrúarmanna!  Til hvers á svartur stjórnmálamaður að mæta þar í viðtal.  Afhverju þá ekki á afskekktan næturfund Ku-Klux-Klan?  Það er náttúrulega von að lygamörðurinn MacCain sé einsog svartur köttur á Fox.  Þetta eru skoðanabræður hans, flokksbræður og vinir.  Og Hillary er svo sem ekki langt í burtu í skoðunum sínum og þjóðfélagsstöðu.

 


mbl.is Fox reynir að svæla Obama út úr greninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá á hvaða tímum ert þú fastur í ???

Anna T (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 01:46

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Hefur þú fylgst með fréttaflutningi þessarar "fréttastöðvar", og hvað hefur tíminn með þetta að gera?  Kannski þú viljir útskýra það!

Auðun Gíslason, 17.3.2008 kl. 01:57

3 Smámynd: Auðun Gíslason

Að horfa og hlusta á Fox er einsog að hoppa 40 ár aftur í tímann!

Auðun Gíslason, 17.3.2008 kl. 01:58

4 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Fox er drasl sem er almennt séð verðskuldar ekki umræðu nema sem skólabókardæmi um hvað mannskepnan getur stundum verið sturluð. Það var ámóta rusl í gangi á kreppuárunum, einn slíkur "refur" hét Goebbels.

Ólafur Þórðarson, 17.3.2008 kl. 03:46

5 Smámynd: Auðun Gíslason

Hér virðast sumir álíta Fox með betri fréttastofum í heiminium, t.d. augl. Síminn að  hægt sé að kaupa sér aðgang að stöðinni á einhverri sjónvarpsfjölrás!  Og svo ljóskurnar á Bifröst!?

Auðun Gíslason, 17.3.2008 kl. 04:07

6 identicon

Viðverukvitt.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 04:28

7 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ææ kisi minn, mikið hlýtur þér að líða illa. Átrúnaðar goð þitt, Barack Hussein Obama, er búið að missa af tækifærinu. Sálnahirðir hans Jeremaiah Wright sá til þess. Það hjálpaði svo sem ekki til, að neita að mæta í viðtal hjá Fox, sama hversu ofstækisfullt viðhorf þið félagirnir hafið til þeirrar stöðvar……Beztu kveðjur til þín kisi minn…mjáááá.

Loftur Altice Þorsteinsson, 17.3.2008 kl. 18:16

8 Smámynd: Auðun Gíslason

Sjúbb!

Auðun Gíslason, 18.3.2008 kl. 00:27

9 Smámynd: Auðun Gíslason

Loftur  minn!  Síðan hvenær Obama varð "átrúnaðargoð" veit ég ekki.  Þetta er væntanlega eitthvað hugarfóstur þitt!  Þú verður bara að ganga með.  Ekki veit ég hvaða tækifæri þú ert  að tala um, en til að upplýsa þig þá er Fox-stöðin fyrir vanvita og Klettafjallahyski.  Svo segja mér sérfræðingar búsettir í Guðseiginlandi.  Amen!  Bið að heilsa Loftice.

Auðun Gíslason, 18.3.2008 kl. 00:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband