Davíð hellir olíu á eldinn!

Seðlabankastjóri, Davíð Oddsson, virðist hafa fundið sér nýtt markmið í lífinu!  Að valda sem mestum skaða með orðum og athöfnum/aðgerðum Seðlabankans.  Yfirlýsingar hans og aðgerðir Seðlabankans, sem hann virðist stjórna einn, hafa verið sem olía á eld.  Hann neitar því að vera brennuvargur!  En hann virðist bæði vera brennukóngur og brennuvargur.  Hann hlóð bálköstinn meðan hann var forsætisráðherra og nú virðist hann staðráðinn í að halda eldinum logandi hvað sem tautar og raular.  Upphafið var yfirtakan á Glitni og nú síðast(?) orða hans í Kastljósinu.  Og svo allt þar á milli.  Glæsilegum(?) ferli hans lauk fyrir rúmum áratug, hefur legið stöðugt niður á við og nú virðist hann ætla að enda starfsævi sína með skemmdarverkum á þjóðfélaginu!

Hversu lengi er hægt að lifa á fornri frægð og orðspori (sem er löngu ónýtt)!


mbl.is Atburðir í Bretlandi felldu Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband