Mistök fyrri ríkisstjórnar voru af óþekktri stærðargráðu! Nú á fyrri ríkisstjórn að halda sig til hlés og gera siðferðileg reikniskil!

 

Geir segir glapræði að kjósa í vor

Það væri „mikið glapræði" að efna til kosninga nú, að mati Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundaði í Valhöll í gær. Að sögn Geirs var um hefðbundinn þingflokksfund að ræða en ekki viðbrögð við atburðum síðustu daga. „Við erum að vinna okkar störf eins og gert er ráð fyrir."
Spurður hvort ríkisstjórnarsamstarfið væri í hættu sagði Geir svo ekki vera, það hefðu þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, staðfest í samtali fyrr um daginn.
Geir telur það ábyrgðarleysi að boða til kosninga eins og sakir standa. „Það væri gríðarlegt ólán fyrir allan almenning í landinu, fyrir þá sem hugsanlega eru að missa vinnuna, fyrirtækin sem eru að berjast í bökkum, því það væri ekki hægt að klára stóru málin sem snúa að bönkunum, erlendum lánardrottnum og öllum þeim verkefnum sem fram undan eru. Að hlaupa frá því núna til að kalla á kosningar í vor væri mikið glapræði."
Um mótmælin í gær og í fyrradag sagði Geir að hann teldi ekki ástæðu til að grípa til sérstakra aðgerða til að koma á ró; fólk hafi fullan rétt á að mótmæla, en brjóti fólk af sér sjái lögreglan um það. „Lögreglan hefur staðið sig afar vel í þessum erfiðu aðstæðum, sýnt mikla þolinmæði og stjórnvisku, finnst mér, og við vonum að hún haldi áfram að ráða við sín verkefni."
Geir gerir lítið úr áhrifum mótmælanna á störf Alþingis; þingið hafi haldið sínu striki á þriðjudag og fundað meðan ástæða þótti til. Fundi hafi hins vegar verið frestað í gær til þess að geta betur undirbúið umræðu um efnahagsmál í dag. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn um aðra helgi. Geir segir það óbreytt að hann ætli að gefa kost á sér í formannsembætti. Hann hefur ekki áhyggjur af því að mótmælendur setji strik í reikninginn. „Við vitum ekkert hvernig það verður. Ég held að það þurfi allir að reyna að róa sig niður í þessum efnum. Þó að fólk hafi fullan rétt á því að mótmæla þá er það ekki við hæfi að gera aðsúg að valdastofnunum samfélagsins eins og gert hefur verið
mbl.is Þreifingar milli flokkanna byrjuðu fyrir löngu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband