Undirbúningur hafinn að nýju bankahruni?

Rétttrúnaðartilhneigingar SJS leyna sér ekki.  Þessi stofnun á að undirbúa eina alsherjar einkavæðingu á fjármálakerfinu uppánýtt.  Ekki hefur heyrst orð um að ríkið komi til með að halda eftir hluta fjármálakerfisins að hætti Norðmanna.  Nei, í anda frjálshyggjunnar skal hafin einkavæðing í rjúkandi rústum fyrri einkavæðingar!
mbl.is Stofna Bankasýslu ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sovét-Ísland óskalandið hvenær kemur þú?

Sovét-Ísland
Sovét-Ísland
óskalandið
hvenær kemur þú?
Er nóttin ekki orðin nógu löng
þögnin nógu þung
þorstinn nógu sár
hungrið nógu hræðilegt
hatrið nógu grimmt?
Hvenær...?

(Jóhannes úr Kötlum: Samt mun ég vaka, 1935) 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 20.6.2009 kl. 11:01

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Þú og þinn Sjálfstæðisflokkur með sitt kaldastríðshugarfar!  En ljóðið er gott!  Annars var ég nú bara að vitna til frænda okkar Norðmanna!  Svona höfum við það í Noregi, segir Eva Joly...

Auðun Gíslason, 20.6.2009 kl. 11:05

3 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Auðun:

Norðmenn geta trútt um talað með sína olíumilljarða!

Ég veit ekki til þess að Eva Joly sé andsnúin ESB? 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 20.6.2009 kl. 21:03

4 Smámynd: Auðun Gíslason

Heyrðu fyrirgefði ég missti af athugasemd þinni.  Olíumilljarðar?  Ég var nú að tala um hugsanlegan eignahlut ríksins í bönkunum í framtíðinni.  Stjórnvöld í Norge treysta einkaauðmagninu illa, því halda þeir í hluti ríkisins.  Nei, Eva er  ekki á móti ESB, ekki frekar en þú eða ég.  Ath. sumir í Vg eru ekki á móti ESB, þvert á móti!

Auðun Gíslason, 22.6.2009 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband