Burt með AGS, stofnun alþjóðakapítalismans!

Losum okkur við AGS áður en það verður of seint  Áður en AGS þvingar ríkisstjórnina til að keyra hér allt niður með niðurskurði.  Þurfum við að svelta okkur gegnum þetta þá verður bara að hafa það.  Förum á danska kúrinn, en hann er skilgreindur þannig:  Maður fer til Danmerkur og þar hefur maður ekki efni á að éta!  Það er danski kúrinn!

Svo þarf forysta Vg að skipta um nafn á flokknum.  U-flokkurinn er réttnefni á flokknum eftir stefnubreytingu forystunnar, flokkseigendafélagsins.  Þessarar forystu sem gerði flokkinn að hjáleigu auðvaldsins.

Ennfremur legg ég til að sósíalistarnir í U-flokknum segi sig úr honum og leggi fram vantraust á ríkisstjórnina!  Þetta er ekki lengur hægt!  Hér veður spillingarliðið uppí í skjóli FME, Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar. 


mbl.is Vill að AGS leggi spilin á borðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband