Missti Eva af einhverju? Hin "sjálfsagða" spilling mun koma í veg fyrir að réttlætið nái fram!

Eina vonin til að koma lögum yfir þrjótana hér á landi, er einmitt með svona aðferðum!  Ríkislögmaður hvað?  Syndir hann ekki í sama vatni og Valtýr Sig., sem Evu þótti svo ómögulegur.  Og nú heldur Eva að allir nema hann séu vammlausir.  Ef hverju missti Eva?  Vantar hana upplýsingar?

Ef fjármálamógúlarnir verða dæmdir til einhverrar refsingar fyrir atferli sitt verður það ekki hér á landi og ekki fyrir atbeina íslenskra embættismanna.  Vonir eru bundnar við að gengið fái þó dóm í Bretlandi.

Hér ræður elítan enn öllu og telur sér allar leiðir færar, sbr. umsókn Jóns Magnússonar!  Ruglið hefur sinn gang skv. venju!  Þingmenn mæta í dinner hjá bönkum og slíkum og mæta svo fullir til starfa.  Ekkert mál!  Hin "sjálfsagða" spilling er hér enn við líði.  Ekkert hefur breyst!


mbl.is Telur nýjan starfshóp pólitískt útspil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband