Ekki alveg rétt! Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn eru í hlutverki klósettvarðarins og sturta niður!

Frá mínum bæjardyrum séð er það nú frekar alþjóðasamfélagið sem er að sturta íslenskri þjóð niður.  Auðmennirnir gengu hart til verks með hjálp alþjóðaauðvaldins og frjálshyggjusinnaðra stjórnvalda og valdastofnanna þeirra.  Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn klára svo verkið með því að skella ábyrgðinni á alþýðu Íslands í innheimtuaðgerðum sínum. 

Furðulegt að Lilja Mósesdóttir sé hissa eftir fund sinn með þingmönnum frá Evrópusambandsríkjunum.  Hafði hún ekki kynnt sér hvernig, og fyrir hverja, Evrópusambandið starfar.  Hafði hún aðeins lesið sáttmála og opinberar yfirlýsingar Evrópusambandsins.  Fékk hún veruleikann í andlitið einsog blautan sjóvettling.  Evrópusambandið lítur nefnilega óskaplega vel út á pappírnum, en veruleikinn er annar.


mbl.is Heilli þjóð sturtað niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband