Ys og þys útaf engu? Stjórnarandstaðan komin að niðurstöðu í Icesafe-deilunni langt á undan samninganefndinni!

Þingmenn, einkum délista og framsóknar, hafa farið mikinn í þinginu í dag, og virtust vera komnir að niðurstöðu í Icesave-samningunum langt á undan samningamönnum Íslendinga, Hollendinga og Englendinga.  Var sú niðurstaða þeirra byggð á þeirra eigin hugarórum eingöngu og óljósum vangaveltum Moggans.  Og auðvitað urðu þeir æfir útaf niðurstöðunni.  Steingrímur J. kom alveg af fjöllum, að því er virtist,  enda fer hann með hið opinbera samningsumboð sem alþingi veitti ríkisstjórninni í vetur.  Stjórnarandstaðan fór einfaldlega framúr öllum væntingum á þingi í dag.  Dario Fo hvað?

P.s.  Af einhverjum ástæðum sakna ég alltaf Árna Johnsen þegar Jón Gunnarsson tekur til máls.


mbl.is Steingrímur fær fullt umboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Auðunn minn.

Mér finnst eins og hlutirnir séu ekki í réttri röð eða röð hlutanna ekki rétt. Annars er ágætt veður hjá mér í Grafarholtinu.

Kær kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 6.6.2009 kl. 04:52

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Sæll, félagi!  Hlutirnir verða sjálfsagt ekki í réttri röð hér meðan allt er hér á tjá og tundri eftir fárviðri frjálshyggjunnar!  Hér í Holunum er veður með ágætum líka, takk fyrir!

Auðun Gíslason, 6.6.2009 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband