Stendur Steingrímur við orð sín?

Hann lofaði í umræðum í þinginu að leggja öll gögn á borðið, þegar málið kæmi til afgreiðslu.  Nú hefur samningurinn ekki fengist birtur og þingmenn ekki fengið að sjá hann.  Eiga þingmenn að greiða atkvæði um icesave-samninginn án þess að sjá hann?  Hvernig væri þá að leggja líka fram gögn síðan í tíð fyrri ríkisstjórnar um málið, ásamt öllum þessum minnisblöðum, sem Steingrímur talaði um.

Eða fær þessi rannsóknarnefnd þingsins ein að sjá þessi gögn?  Nefnd sem er búin að gera sig að athlægi vegna kjánalegra klögumála burtrekins fyrrverandi forstjóra FME.  Formaður nefndarinnar birtist helst sem varðhundur kerfisins, sem hann ku eiga að rannsaka.  Dæmigerður kerfiskall með óhæfileg tengsl við þá sem rannsaka skal!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband