Þjóðgarður?

Ekki auðmannagarður?  Almenningur hefur ekki aðgang að nema hluta garðsins vegna sumarhalla.  Hvernig væri að rífa hallirnar og tyrfa yfir þessar lóðir líka og opna garðinn fyrir þjóðinni?
mbl.is Hótelrekstur á ekki að vera í þinghelginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, sammála. Það stingur í augun að koma á þennan fallega stað, þjóðgarðinn okkar allra og sjá svo ekki er um villst að hann er meiri fyrir þá ríku en okkur almúgann

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 11.7.2009 kl. 16:14

2 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Er þá ekki Valhallarreiturinn einmitt það vígi sem almenningur á að standa vörð um ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 11.7.2009 kl. 16:46

3 Smámynd: Auðun Gíslason

Það væri kannski hugmynd að hafa þarna einskonar minningarreit um íslenska efnahagsundrið í mynd brunarústanna af Valhöll?

Auðun Gíslason, 11.7.2009 kl. 17:10

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ef sumarhallirnar fara allar sem ein undir græna torfu er fátt annað eftir en að endurreisa Drekkingarhyl til fyrri virðingar og í þetta sinn til að embætta stórþjófótta auðmenn í stað kvenna sem varð það á að eignast óleyfileg börn.

Jóhannes Ragnarsson, 11.7.2009 kl. 21:47

5 Smámynd: Auðun Gíslason

Er ekki fulllangt gengið að drekkja þeim!  Væri ekki mannúðlegra að dæma af þeim auð og æru, og svo í ævarandi útlegð?

Auðun Gíslason, 11.7.2009 kl. 21:51

6 Smámynd: Auðun Gíslason

Reyndar hafa þeir tapað bæði ærunni og auðnum (segja þeir sjálfir), þannig að útlegðin verður að duga!

Auðun Gíslason, 11.7.2009 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband