Áfengisþarfafrumvarpið.

Alveg er ég samála Sigurði Kára.  Það á að sjálfsögðu að selja bjór og brennivín sem víðast.  Helst ætti að skilda alla rekstraraðila í landinu til að hafa áfengi á boðstólum.  Hvernig er það?  Væri ekki hægt að fá bjórinn borinn út með Mogganum og Fréttablaðinu...

Annars erum við öll velkomin í AA-samtökin, Siggi minn!  Er það ekki málið?


Hvað segir Hannes?

Ég þori að fullyrða, að Hannes Hólmsteinn verður ekki í neinum vandræðum með að véfenga þessa skýrslu.  Honum tekst þá örugglega að sannfæra sjálfan sig um, að skattar á Íslandi séu mjög hóflegir og í lægri kanntinum miðað við önnur lönd á listanum.  Finnska skattgreiðendasambandið og Stefán Ólafsson hafi örugglega  rangt fyrir sér um skattpíninguna í íslenska sæluríkinu!
mbl.is Neysluskattarnir hæstir á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband