I og F og eldri borgarar+öryrkjar.

 

_falkiHvað eiga þessir framboðslistar sameiginlegt. Það er spurningin. Mér flaug það skyndilega í hug að það sem þessi framboð eiga öll sameiginlegt er að forystusauðirnir eru allir úr Sjálfstæðisflokknum! Margrét Sverrisdóttir (kannski Ómar Ragnarsson), Guðjón A. Kristinsson og Arndís Björnsdóttir eru öll úr Sjálfstæðisflokknum. Var einhver að tala um klofning einhversstaðar. Svo gæti verið von á einu enn, hver veit. Nei, ég segi nú bara svona. Er þá ekki augljóst hverjir mynda næstu ríkisstjórn. Jamm, Sjálfstæðisflokkarnir allir fjórir. Alveg er þetta grænt!

 


Seðlabankinn í pólitík?

Ingvi Hrafn skilur ekkert í Davíð, að leggja fram svona plagg eins og í gær. Hann grunar Seðlabankann kominn útí pólitíska refskák. Trúir því samt varla uppá Davíð vin sinn, en segir einhvern óþef af málinu. Hvort svo er skal ósagt látið en varla gat tímasetningin verið óheppilegri fyrir virkjunarsinna. Þá vitið þið það Sjálfstæðismenn. Davíð hefur talað! Flokkurinn telur komið nóg!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

s


Alcan með kosningarétt í Hafnarfirði?

Ég verð að viðurkenna að hakan seig niður á bringu, þegar ég sá upphafið á borgarafundinum í Hafnarfirði í gær. Ég nefnilega hélt að "Hagur Hafnarfjarðar" og "Sól í Straumi" væru samtök borgaranna sem tækjust á um málefnið sem um átti að fjalla; viðfangsefnið væri sem sagt skipulagsmál og stækkunin hjá Alcan. En afsakið! Var ekki sjálft viðfangsefnið mætt, þ.e. fulltrúi þess í Straumsvík, Rannveig Hrist, afskið Rist, og hélt fyrstu framsöguræðuna. Síðan komu fulltrúar samtaka borgaranna. Ég er bara svona grænn, en mér finnst eitthvað nú bogið við þetta...

Bloggfærslur 30. mars 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband