Lögmálssiðfræði eða kærleikssiðfræði? Hvað vilt þú?

   Hvað oft frelsarinn sniðgekk þær reglur og þau lögmál sem ríktu í samfélagi Gyðinga á hans tíma vitum við ekki, en um nokkur slík dæmi má lesa í Guðspjöllunum. Þetta gerði hann til að undirstrika boðskap sinn. Mér er alveg óskiljanlegt, að við kristnir eigum að lifa í skugga lögmáls Gyðinga. Ætli færi þá ekki að fara um marga. Á að lífláta fólk í samræmi við lögmálið, þar sem það á við samkvæmt lögmálinu? Eiga konur að þola að undirgangast þær reglur, og framkomu, sem viðhafðar voru skv. Gamla Testamentinu? Eða eigum við að týna til eitthvað sem hentar okkur í það og það skiptið? Má nefna afstöðina til mála eins og stofnfrumurannsókna, afstöðuna til samkynhneigðra, prestsþjónustu kvenna o.s.frv. Kannski má eiga von á sömu afstöðu til þeirra sem uppvísir verða af hórdómi, til réttinda kvenna, til mágaskyldunnar, til sjúkra og fatlaðra (þeir eru taldir syndarar, þessvegna eru þeir sjúkir eða fatlaðir). Sjálfsagt mætti halda áfram til eilífðarnóns, en mig brestur þekkingu til að telja upp allar þær reglur og lög sem gamla lögmálið býður mönnum að búa við. Mér skilst að lögmálsþrælkunin leggi á menn að fylgja nær 600 reglum og lögum í sínu daglega lífi, og þá er ekki verið að tala um mannanna lög, heldur lög og afleiddar reglur gamla lögmálsins. Kristnir lögmálsdýrkendur leggja mikla áherslu á gamla lögmálið, en virðast gleyma nýja lögmálinu sem Jesú færði okkur, að minnsta kosti er þeim ekki jafn tíðrætt um það sumum. "Kjarni kenningarinnar um guðsríkið, að það væri komið í Jesú og með honum, varð til þess að Jesú hafnaði lögmáli gyðinga, eða uppfyllti það eins og hann sjálfur sagði.......Eina boðorðið sem einhverju skipti að dómi Jesú, var að elska guð og náungann eins og sjálfan sig, hið tvöfalda kærleiksboðorð. Í stað lögmálssiðfræði kom kærleikssiðfræði. Áður hafði maðurinn þurft að fylgja lögmáli til að frelsast. Nú skyldi kærleikurinn settur í öndvegi" (Þórhallur Heimisson, Hin mörgu andlit trúarbragðanna).

Hatur vekur illdeilur, en kærleikurinn breiðir yfir alla bresti. Viska er á vörum hyggins manns, en á baki hins óvitra hvín vöndurinn. (Orðkviðirnir 10, 12-13). Þó ekki vöndur lögmálsins eða hvað?                              

                                                                       


Alan Chambers á Omega.

Hommi sem fór aftur inní skápinn? Og læsti að sér. Annar frægur afhommari í BNA var gripinn með allt niðrum sig. Hann hafði verið í föstum reglulegum viðskiptum við karlmellu. Ég meina það, er enginn endir á ruglinu í þessu fólki. Og allt útaf því að menn vilja helst lifa skv. lögmálssiðfræði gamla Testamentisins, sem heldur því fram að Guði sé með kynhneigðir okkar mannanna á heilanum eins og þeir sjálfir. Ætli geti verið að einhverjir hafi misst af því að hinn gamli sáttmáli var úr gildi numinn. Nýr sáttmáli tók við sem byggir á tvöfalda kærleiksboðorðinu!

Álver og ofmetin umhverfismál!

Nú hafa Hafnfirðingar hafnað stækkin álvers. Í bili að minnsta kosti. Það er alveg ljóst í mínum huga, að margir kusu með buddunni, eins og það er víst kallað. Ástandið er þannig að vísitölubinding lána og háir vextir hafa mikið að segja, þegar menn taka afstöðu í stóriðjumálum. Kjósendur eru ekki fífl. Þeir vita hvaða áhrif þenslan hefur á lífskjörin. Hinir ríku hafa það betra og verkafólkið hefur það verra. Það er nú ekki flóknara en það! Kjósendur kusu með því að slegið yrði á þensluna og hagkerfið kælt.

Í hænsnakofanum hjá Agli.

Geta konur ekki talað saman án þess að grípa frammí fyrir hverri annari. Þvílíkt og annað eins! Það heyrðist fjanda kornið ekki mannsins mál fyrir frammí gripum (og reyndar tók Egill þátt í því). Hér er kannski komin ástæðan fyrir því hvað lítið er um konur í þættinum. Nú verð ég tekinn á beinið, en ég læt þetta samt vaða... 


Bloggfærslur 1. apríl 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband