Hafa vit fyrir stjórn Strætó!

  Ellefu ára börn hafa greinilega betra vit á rekstri þessa "þjónustufyrirtækis" en meintir stjórnendur þess.  Þeir virðast sem sagt álíta, að verri þjónusta bæti reksturinn.  Því til sönnunar má benda á hið undarlega leiðakerfi sem innleitt var á sínum tíma.  Það er mun verra en það gamla, þar sem það tekur minna tillit til aðstöðu og þarfa notendanna, sbr. skiptistöðina í Ártúnsbrekku.  Og ekki er nú sumar áætlunin betri.  Ferðir á hálftíma fresti er nú varla til þess að bæta þjónustuna og fjölga þannig farþegum. Mér er til efs, að nokkur stjórnarmanna hafi reynslu af því að þurfa að nota strætó til langstíma til að komast til og frá vinnu eða í allar sínar útréttingar.  Til þess að stjórna þessu fyrirtæki þurfa stjórnendurnir að þekkja og hafa reynslu af þjónustu þess.  Það hafa börnin, en ekki stjórnendurnir.  Það er ljóst.  Þessa reynslu og þekkingu öðlast þeir ekki með því að skoða bókhaldið!
mbl.is „Kostnaður við strætósamgöngur myndi skila sér í umhverfis- og slysavernd"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur leiðir Einar.

Einsog venjulega finnst Sjálfstæðismanninum ekki tímabært að grípa til aðgerða!  Þeir eru trúir sannfæringu sinni að best sé að gera ekki neitt.  Össur verður því sennilega að rugga báti hins værukæra samráðherra síns.  Kannski opnast þá augu Einars fyrir því, að það er ætlast til að hann grípi til aðgerða.  Það fylgir því nefnilega fleira að vera ráðherra en ráðherrabíll. 
mbl.is Ráðherrum falið að fylgjast með þróun mála á Flateyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. maí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband