14.11.2008 | 17:13
Hćlisleitendur í lífshćttu. Mótmćlasvelti og yfirvofandi brottrekstur! Er mannúđin dauđ?
Í upphafi síđustu viku hófu ţrír hćlisleitandur mótmćlasvelti vegna stöđu mála sinna hjá Útlendingastofnun og hjá Dómsmálaráđuneytinu. Ţeir hafa dvaliđ hér í ţrjú og fjögur ár án ţess ađ fá dvalaleyfi. Tveir ţessara einstaklinga eru frá Íran, og ađ minnsta kosti annar ţeirra á dauđann vísan verđi hann sendur heim. Í Íran eru trúskiptingar hálshöggnir. Hinn mun líklegast verđa líflátinn. Í Íran ríkir ástand trúarofstćkis í allri stjórnsýslu og hafa menn Sharia lög í hávegum. Tvennum sögum fer af ţví hvort búiđ er ađ kveđa upp endanlegan úrskurđ um ađ senda mennina til heimalands síns. Skv upplýsingum frá fréttastofu RÚV og frá Mannréttindaskrifstofu Íslands er búiđ ađ ákveđa ađ senda mennina heim. Ţađ er skv uppl. Úlendingastofnunar Nákomnir vinir mannanna hafa ađra sögu ađ segja. Ţeim er sagt ađ ţeir verđi ekki sendir heim. Ţessi stofnun hefur í gegnum tíđina ekki veriđ alltof elsk ađ sannleikanum, ţannig ađ óvíst er um örlög ţeirra. Í gćrkvöldi voru tveir af ţessum ţriggja manna hópi sendir á sjúkrahús vegna vannćringar og ofţornunar.
Ţađ segir sína sögu um áhuga Ríkissjónvarpsins, ađ ekki hefur birst frétt af málinu í fréttum ţess. Samt var tekiđ viđtal viđ mennina laugardaginn 8.nóvember.
Kannski er fréttastofan svona upptekinn af sjálfsvorkun okkar Íslendinga og leit okkar ađ sökudólgum ađ efnalegri ógćfu okkar? Kannski höfum viđ glatađ svo miklu ađ jafnvel mannúđ og mannkćrleikur eru okkur glötuđ? Kannski skipta okkur engu tvö mannslíf eđa ţrjú?. Eđa jafnvel fleiri? Ţví víst eru mannslíf líka hér í hćttu vegna glćfraspils stjórnmálamanna, háttsettra embćttismanna og fjármálamanna (ađ ég segi ekki fjárglćframanna).
En eigum viđ ekki ađ minnsta kosti ađ bjarga ţeim mannlífum sem viđ getum, hvort heldur ţau eru íslensk eđa ekki? Í nafni kćrleikans?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)