9.2.2008 | 19:59
Ár músarinnar! Ekki rottunnar!
9.2.2008 | 19:06
"Vilja að Vilhjálmur víki."
Skv. visi.is er loksins farið í að glitta í að Axlar-Villi axli sín skinn og axli ábyrgð á gjörðum sínum og borgarstjórnarflokksins í REI-málinu. Þá munu hefjast hjaðningarvíg og valdabarátta innan borgarstjórnarflokksins. Barátta sem mun enda með þessum venjulegu yfirlýsingum um að þessi eða hinn njóti fyllsta trausts borgarstjórnarflokksins og að full sátt og samstaða ríki innan hans um niðurstöðuna. Verst að Villi er ekki lögfræðingur að mennt. Hann gæti þá orðið næsti borgarlögmaður! Það verður gaman að sjá hvað feita starf Flokkurinn skaffar honum!
Valdabaráttan í borginni verður æ meira spennandi! Hvað gerist í Valhöll í næsta þætti? Verður Hanna Birna beitt brögðum? Verða Gísli Marteinn borgarstjóri á eftir Ólafi? Hvað tekur við? Við fylgjumst með með öndina í hálsinum! Geir Haarde fundaði um borgarstjórnarmál Reykvíkinga á lokuðum fundi með Kópavogsbúum! Verður Gunnar Birgisson næsti borgarstjóri? Verður Ráðhúsinu lokað? Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins fer huldu höfði og svarar ekki í símann. Gaman! Gaman! Allt komið í vitleysu!!!
9.2.2008 | 17:32
Hvar er pólitísk ábyrgðtilfinning borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins? Eða er allur sá flokkur siðlaust skítapakk?
![]() |
REI - ætlar Sjálfstæðisflokkurinn ekki að axla ábyrgð? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.2.2008 | 16:56
Óttinn við "valdið".
"Sagðist hún þá ekki vilja gefa svar "sem dregið gæti dilk á eftir sér," einsog hún komst að orði." Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður þarf greinilega að gæta sín gangvart "valdinu" sem nú hefur kjaftað sig útí horn og er því til als víst!
Með öðrum orðum: Haltu kjafti og vertu sæt!
![]() |
Yfirlýsing frá borgarlögmanni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
"Auðvitað er þetta ekki fallegt á að líta því njósnabeiðnin kom upphaflega frá Bjarna Benediktassyni og íslensku ríkisstjórninni. Í dag myndi maður kalla þetta landráð. Að ráðherra skuli leggjast svona á einn listamann að hann geti ekki komið út verkum sínum í fimmtíu ár á einu stærsta málsvæðinu!" Guðný Halldórsdóttir í Frbl.
9.2.2008 | 16:35
Lögfræðingur útí bæ!
Hvernig er þetta? Sagði Axlar-Villi ekki að hann leitaði ekki til lögfræðings útí bæ! En bíðum við, er forstjóri Orkuveitunnar ekki maður útí bæ, sem þar að auki starfar ekki sem lögfræðingur. Hann á að gæta hagsmuna OR (sem hann gerði augljóslega ekki), en ekki gefa góðvinum sínum ráð. Og sérstaklega ekki vond ráð.
Er ekki hægt að moka yfir Villa í holunni, sem verður æ dýpri?
![]() |
Forstjóri OR álitsgjafinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |