Til er ég!

Alveg væri ég til í að reka öldrunardeild fyrir afdankaða stjórnmálamenn á eftirlaunum.  Er einmitt með augastað á jörð í Eyjafirði með ekki mikið niðurníddum útihúsum, sem hentuðu vel undir slíka starfsemi!  Ku vera þannig að maður fær að hirða af gamlingjunum eftirlaunin og hreytir síðan í þau einhverjum vasaaurum.  Í Guðana bænum, ekki breyta eftirlaunalögum ráðherra og þingmanna.  Verð með opna kynningu um næstu páska.  Fyrstur kemur, fyrstur fær!  Það verður sko rifist um básana, hægir/vinstri!
mbl.is Rætt við einkaaðila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband