Björn Bjarnason finnur hálmstrá.

Nú heldur Björn Bjarnason því fram, að Ómar Valdimarsson þekki betur til í Kenya en heimamenn.  Gott hjá Birni!  Hann finnur víða hálmstráin til að réttlæta sjálfan sig!  Það má vel vera að ástandið hafi batnað í Kenya, en að Paul Ramses hafi einfaldlega logið því að líf hans sé í hættu snúi hann heim...  Er það hugmyndin, sem Björn er að reyna koma að í bloggi sínu í dag?  Kannski svolítið langt gengið vilji maður láta taka mark á sér...en það má reyna ýmislegt...

Ein spurning, herra Björn Bjarnason.  Þú varst ráðherra menntamála 1995-2002.  Hvernig stendur á því að þér var aðeins einu sinni boðið á lokahátíð nýbúafræðslu Námsflokka Reykjavíkur, þ.e. 1995 og síðan ekki söguna meir?  Kannski þú upplýsir lesendur bloggsins um það, nú og ef ekki þá mun ég gera það á næstu dögum!  Það skal tekið fram, að það var venjan að bjóða menntamálaráðherra á hátíðina.


Haukur Guðmundsson í Kastljósi. Ein rangfærsla enn!

Haukur Guðmundsson forstjóri Útlendindastofnunar:  "Þó hann (Paul Ramses) þekki fólk á Íslandi...!

Lydia Henrysdóttir og Paul Ramses eru systrabörn.  Lydia hefur búið á Íslandi í 14 ár!  Paul Ramses vann um eins árs skeið hjá AUS!  Paul Ramses var starfsmaður ABC-barnahjálpar í Kenya og kom þar á stofn skóla!  Væntanlega hefur hann kynnst Íslendingum í þessum störfum sínum.  Forystumenn ABC eru bara ekki eitthvert fólk útí bæ.  ABC stendur fyrir hjálparstarfi í Afríku, Asíu og í Ameríku og ber hróður landsins víða og betur heldur en sumir jakkafata-jóar í ráðuneytum og embættum landsins.  Starf ABC vekur virðingu og aðdáun hjá hverjum sem kynnst hefur því.  Fyrir þessi samtök hefur Paul Ramses starfað.  Kannski Hauki Guðmundssyni finnist þetta að vera, að þekkja eitthvað fólk á landinu?  Þetta fólk hefur borið hróður landsins víðar og betur og nýtur meiri virðingar þeirra sem til þekkja heldur en Haukur og Björn Bjarnason geta nokkur tíma vonast til að njóta! 

Hvað varðar þessa Dyflinarreglugerð, þá er hún ekki hafin yfir gagnrýni og ekki þarf að beita eða túlka innihald hennar með þeim hætti sem valdsmenn hafa gert.  Það er ekki skylda skv. henni að snúa hælisleitendum til fyrsta lands, eins og valdsmennirnir halda fram.  Það er blekking!

Auk þess má vísa til útlendingalaga, þar sem áhersla er lögð á mannúð og mannréttindi.  En það er kannski þessi tilfinningasemi  sem valdsmaðurinn Björn Bjarnason talar um á bloggi sínu.  Allt í lagi, þá er það tilfinningasemi að vilja frekar sjá mannúð og mannréttindi en kalda "skynsemi" þess að framfylgja lagabókstaf (sem hægt er að túlka á ýmsa vegu, sbr. reglugerðina) af harðýðgi hjartans.  Það hefur líklega verið þetta sama viðhorf valdsmannsins sem réð því að héðan voru sendir Gyðingar beint í gasklefana á sínum tíma.  Megum við þá ekki biðja um meiri tilfinningasemi í heiminn?


Bloggfærslur 5. júlí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband