19.8.2008 | 13:54
Tvær kjaftakellingar taka tal saman.
Ekki átti ég von á að hinn umtalsfrómi Svavar Gestsson rataði í dagbækur Matthíasar og það sem heimildarmaður skáldsins um mannkosti félaga sendiherrans í stjórnmálum. En þegar betur er að gáð, þá hæfir þar kjaftur skel! Einhver skæðasti baktjaldamakkari á vinstri væng stjórnmálanna og annar samskonar af hægrivængnum. Pólitísk eftirmæli um Svavar þennan verða nú varla fegruð úr þessu. Á öðru bloggi er fjallað aðeins um áhrif Svavars á innra starf Vinstri-Grænna, kölluð Svavarsvæðing. Fyrir ókunnuga lýsir þessi væðing sér í að upp eru teknar hnífstungur og baktjaldamakk í hornum og að hurðabaki með tilheyrandi félagsanda!
![]() |
Svavar dregur dagbækur í efa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)