Forsetinn er ógnun við lýðræðið, skv. innmúruðum innstu koppum Sjálfstæðisflokksins!

 

SJÁLFGRÆÐISFLOKKURINN, STJÓRNARMYNDUNARUMBOÐIР OG FORSETINN.

 

Nú eru sjálfgræðismenn farnir að atast í forsetanum enn á ný.  Á sínum tíma héldu þeir því fram að forsetinn gæti ekki skotið málum til þjóðarinnar.  Neitunarvald forsetans og málskot var viðurkennt í öllu skólakerfinu og fræðimenn voru fram að þessu  sammála um þennan rétt forsetans.  Enda getur víst orðalag ekki orðið skýrara en stjórnarskráin   um þennan rétt forsetans.  En sjálfgræðisflokkurinn hélt öðru fram og kenndi í stjórnmálaskóla flokksins.  Og þess vegna hlýtur það að vera rétt.

Svo gerist það rétt fyrir síðustu kosningar, að þingmaður flokksins, Ásta möller, skrifar grein, þar sem hún heldur því fram, að forsetinn sé ógnun við lýðræðið í landinu.  Þarna mun Ásta hafa endurómað og afhjúpað umræður,  sem áttu sér stað í innstu hringjum flokksins og á skrifstofu ritstjóra Morgunblaðsins.  Ástæðan var sú hætta að sjálfstæðisflokkurinn missti stjórnarmyndunarumboð sitt, ef stjórnin missti meirihluta sinn á þingi.  Þá skapaðist, sem sagt, sú hætta að flokkurinn yrði að skila umboðinu til forseta og hann gæti þá veitt hverjum sem verða vildi af flokkunum stjórnarmyndunarumboðið.  Þannig yrði forsetinn ógnun við lýðræðið, skv. innstu koppum í búri sjálfgræðisflokksins. Með því að fela öðrum en formanni flokksins umboð til stjórnarmyndunar.  Sjálfgræðisflokkurinn, að minnsta kosti innstu koppar, líta svo á að forsætisráðuneytið eigi að vera í þeirra höndum og engra annara.  Allt annað ógni tilveru þjóðarinnar og lýðræðinu í landinu!  Þetta hefur komið berlega fram í dag og í gær.  Það er alveg af og frá, að flokkurinn  láti forsætisráðuneytið af hendi.  Þrátt fyrir að Geir H Haarde hafi hreinlega flækst fyrir með verkstjórn sinni.  Fyrirtækin og heimilin í landinu sjá þess engin merki, að björgunaraðgerðir þeim til handa séu komnar í framkvæmd eða séu á döfinni.  Samt telja sjálfgræðismenn af og frá að láta af forsæti í ríkisstjórninni.  Þeirra er stóllinn.  Allt annað er ógnun við lýðræðið.

Nú eru gammarnir farnir að atast í forsetanum eina ferðina enn.  Og það vegna þess að hann benti á þá augljósu staðreynd að vald forsætisráðherra, sem sagt hefur af sér fyrir sig og ráðuneyti sitt, er takmarkaðaðra en annars, þrátt fyrir að stjórnin sitji sem starfstjórn.  Við það flyst þingrofsrétturinn frá forsætisráðherra til forsetans, og sitjandi forsætisráðherra hefur einnig misst stjórnarmyndunarumboð sitt til foretans til ráðstöfunnar til annarra flokka eða formanna þeirra.Þetta er einkennileg staða.  Sjálfgræðisflokkurinn telur sig eiga forsætisráðuneytið.  Ef forsetinn veitir einhverjum öðrum umboð til stjórnarmyndunar, þá er það ógnun við lýðræðið.Og forsætisráðherra starfsstjórnar hefur rétt til að rjúfa þing, bjóði honum svo við að horfa.  Þrátt fyrir fyrrgreinda takmörkun.

Annað sem gammarnir eru vitlausir yfir er að forsetinn gerði sig sekan um að tjá skoðanir sínar um hvað þyrfti að gerast í landinu til þess að sátt næðist með þjóðinni og ráðamönnum hennar.  Samt er þetta öllum ljóst jafnt almenningi, sem forsetanum.  Öllum nema gömmunum í sjálfstæðisflokknum..Sáttmáli samfélagsins hefur verið rofinn.  Friðurinn rofinn. Og lögin.  Og þeir sem rufu samfélagssáttmálann voru innstu koppar sjálfgræðisflokksins og gulldrengirnir þeirra.

Þennan sáttmála þarf að endurnýja, gera nýjan.  Forsetinn gerði sig sekan um að benda á þessa augljósu staðreynd.  Þess vegna eru gammarnir brjálaðir.


Sjúkrasamlagið farið frá!

bankarrikisstjbankar

Og skilur samfélagið eftir í rjúkandi rúst!

 

 

Gunnlaugur Bjarnason

26.1.2009 | 15:53

Heilaskemmdir

Það er fáránlegt að halda því fram að besta lausnin sé meiri upplausn. Auðvitað átti að stefna strax að kosningum við bankahrunið, en að mynda sjónarkreppu vegna valdagræðgi er Sollu líkt.

Jóhanna næsti forsætisráðherra?

Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt


Geir H. Haarde og vinir hans orðnir að alheimsviðundri!

Það verður ekki annað sagt en að þetta eru "spennandi tímar hjá Sjálfstæðisflokknum."

Ómarktækur stjórnmálafræðingur?

Stefanía Óskarsdóttir virðist furðu oft ruglast á stjórnmálafræðinni og skoðunum sínum sem flokksbundins í Sjálfgræðisflokksins!  Það má benda á orð hennar, að nú reyni á hvort Vg vilji axla ábyrgð korteri fyrir kosningar! 

Fyrir það fyrsta hafa Vinstri Græn alltaf viljað ábyrgð.  Vg mun axla ábyrgð nú þegar formaður Sjálfgræðisflokksins neitar allri samvinnu við aðra flokka, nema það sé á forsendum hans og hans nýfrjálshyggju hugmynda.  Nú hefur Sjálfgræðisflokksins hlaupið frá ábyrgðinni, sem hann ber á hruni íslensks samfélags.  Geir Haarde hefur ákveðið hagsmunir flokksins skulu teknir fram fyrir hagsmuni þjóðarinnar, enn einu sinni.


mbl.is „Nú reynir á Vinstri græna"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VinstriGræn setja ofaní við BB! Meiðyrði, rangar sakir og einelti dómsmálaráðherra!

 

Þingmenn VG tala um einelti dómsmálaráðherra

Sakar þingmenn um að hafa veist að lögreglu

26.1.2009 15:03 Fréttaskýringar

Atli Gíslason segist ekki sitja undir röngum sakargiftum frá dómsmálaráðherra. Refsivert sé að bera fólk sökum eins og Björn Bjarnason geri. Álfheiður Ingadóttir sakar Björn um einelti.

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, færir langt mál um mótmæli og pólitík á heimasíðu sína bjorn.is um helgina. þar segir hann meðal annars:

"Þingmennirnir Álfheiður Ingadóttir og Atli Gíslason hafa beinlínis veist að lögreglunni vegna aðgerða hennar."

Ótrúlegar ásakanir sem varða við lög

"Þetta eru ótrúlegar ásakanir dómsmálaráðherra gagnvart mér sem einstaklingi og alþingismanni og fela í sér rangar sakargiftir sem refsiverð eru að almennum hegningarlögum, 6 mgr, " segir Atli.

Þingmaðurinn segist hafa fylgst grannt með mótmælum við alþingishúsið síðastliðinni þriðjudag, fyrst innan úr þinghúsinu meðan þingfundur stóð og síðar utan húss síðla dags og um kvöldið.

"Ég tók marga tali, bæði lögreglumenn og mótmælendur. Um kl. hálf tíu um kvöldið gerði ég mér ljóst að í mikið óefni stefndi. Gerði ég mér því ferð á skrifstofu mína að Vonarstræti 12 og ritaði allsherjarnefnd bréf, lýsti þungum áhyggjum mínum og óskaði eftir því að nefndin kallaði á sinn fund talsmenn mótmælenda og lögreglu til að koma á samræðu milli þessara aðila og þingsins í þeirri einlægu von að koma í veg fyrir ofbeldi, ekki síst gegn lögreglumönnum."

"Ofbeldi er eitur í mínum beinum," segir Atli.

Smugan sagði frá þessari beiðni Atla, sem ekki hefur verið orðið við ennþá. En um ofbeldi næturinnar segir þingmaðurinn þetta:

"Því miður brast það á eftir miðnætti og endurtók sig daginn eftir. Ofbeldi er eitur í mínum beinum og þeirri skoðun lýsti ég meðal annars afdráttarlaust í morgunútvarpi Bylgjunnar fimmtudagsmorguninn 21. janúar og að þeir sem því hefðu beitt gagnvart lögreglu ættu eðlilega að sæta ábyrgð," segir Atli. En í þeim þætti lét Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins að því liggja að Vinstri græn stæðu að baki mótmælum þar sem ofbeldi hefði verið beitt.

"Það vita allir sem vilja vita að lögreglan hefur staðið sig afar vel í mótmælunum, sýnt aðdáunarverða þolinmæði og umburðarlyndi sem beinlínis hefur komið í veg fyrir mun meira ofbeldi en raun ber vitni."

Býst ekki við að Björn biðjist afsökunar

Atli reiknar ekki með því að Björn Bjarnason biðjist afsökunar eða taki ummæli sín aftur, þar sem hann skilji ekki það sem er að gerast, eða almenning í landinu.

"Í þessu ljósi eru árásir dómsmálaráðherra á mig, þessar óskammfeilnu röngu sakargiftir, honum fullkomlega ósæmandi og sýna svart á hvítu að hann lifir ekki í sama heimi og almenningur í landinu. Ég ætla Birni ekki þann manndóm að biðjast afsökunar á lygum sínum, en þær hitt hann sjálfan fyrir, segir Atli Gíslason, lögmaður og þingmaður vinstri grænna, sem býst ekki við því að nokkur heilvita maður taki tilhæfulausar ásakanir dómsmálaráðherra alvarlega. Sjálfur hafi hann rætt við lögregluna, á bæði á óformlegum fundi með talsmönnum Landssambands lögreglumanna og í samtali við Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjón. Í þessum samtölum hafi verið rætt um leiðir til samstarfs milli lögreglu og friðsamlegra mótmælenda, sem síðan komst á að frumkvæði mótmælenda sjálfra.

Dapurlegt að yfirmaður dómsmála stundi einelti

Álfheiður Ingadóttir segir dapurlegt að yfirmaður dómsmála í landinu skuli leggja þingmenn í einelti eins og hann geri með ítrekuðum og algjörlega rakalausum ásökunum. „Ég hef ekki veist að neinum lgöreglumanni en því er hinsvegar ekki að leyna að lífvörður einhvers ráðherrans veittist að mér í þinghúsinu 20. janúar s.l. og ég svaraði fyrir mig, spurði hann m.a. að nafni og sagðist ekki hafa áhuga á því að hann hótaði mér eða segði mér hvernig ég ætti að sitja eða standa á mínum vinnustað. Ég gerði athugasemdir við framgöngu hans bæði við forsætisráðherra og forseta alþingis."

„Ég hef aldrei séð ástæðu til að svara Birni Bjarnasyni fyrr. Mér finnst hann vera fullkomlega ómarktækur. Ásakanir hans í fréttum Ríkisúvarpsins voru t.a.m. þess eðlis að hann tók fram að hann hefði sjálfur ekki verið á vettvangi, heldur hefði einn og annar sagt honum eitt og annað. Því miður leitaði fréttastofan ekki til mín vegna þessara ásakana Björns, sem ég hefði gjarnan viljað svara þá."

„Hann hefur verið með mig á perunnu alveg frá því ég var kosin á þing og það hefur sést á skrifum hans og orðum í þinginu að honum er ekki sjálfrátt þegar ég er annarsvegar. Þetta er einhver kaldastríðsskjálfti sem hann ræður ekki við. Síðustu daga hefur Björn Bjarnason hins vegar útvíkkað ásakanir sínar og talar um vinstri græn almennt sem stuðningsmenn ofbeldis. Því getur hvorki þingflokkurinn né ég sem einstaklingur setið undir. Þetta hefur síðan verið étið upp af jábræðrum Björns á netmiðlum og víðar og er með öllu óþolandi."

Ályktun þingflokks VG vegna ásakana Björns Bjarnasonar

„Vegna órökstuddra ásakana af hálfu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra í garð einstakra þingmanna  VG vill þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs koma eftirfarandi á framfæri:
Þingflokkur Vinstri grænna fordæmir harðlega hvers kyns ofbeldi, sama hver í hlut á. Ofbeldi í garð lögreglunnar er aldrei og undir engum kringumstæðum réttlætanlegt.

Friðsamleg mótmæli og andóf eru mikilvægir hlekkir virkrar þátttöku í lýðræðisríki og það er ekki að undra að fólk rísi nú upp gegn því órétti og ranglæti sem hefur fengið að viðgangast í samfélaginu. Slík mótmæli beinast ekki gegn góðri löggæslu heldur gegn vanhæfum stjórnvöldum og þeim sem ábyrgðina bera.

Að mati þingflokks VG hefur lögreglan almennt sýnt aðdáunarverða þolinmæði og umburðarlyndi sem hefur komið í veg fyrir frekara ofbeldi. Fyrir það á lögreglan hrós skilið og sama gildir um mótmælendur sem af hugrekki slógu skjaldborg um lögreglumenn til að verja þá gegn árásum. Samtakamátturinn var þannig virkjaður til að útiloka frekara ofbeldi og slíkt vekur vonir um að okkur Íslendingum takist að vinna okkur út úr aðsteðjandi erfiðleikum með friðsamlegri samstöðu.

Tilraunir Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra til að slá ryki í augu fólks með yfirlýsingum eins og þeirri að tilteknir þingmenn VG hafi „beinlínis veist að lögreglunni" eru veruleikafirrt og eiga sér enga stoð í sannleikanum  Það er ábyrgðarhluti að yfirmaður dómsmála í landinu skuli viðhafa slíkar dylgjur og blekkingar í pólitískum tilgangi.
Gríðarlegt álag er á hinni almennu löggæslu í landinu sem hefur mátt þola mikinn niðurskurð og erfiðar vinnuaðstæður á síðustu árum. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs sendir þeim baráttukveðjur og minnir á að það er hlutverk okkar allra að vernda góða löggæslu á sama hátt og hún verndar okkur".

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

 

*Nafn:  


Mannréttindi barna á krepputímum.

Efnahagslegar aðstæður leysa ríki ekki undan skyldum sínum.  Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna ber að virða.  Vegna þess ástands, sem afglapar í stjórnmálum og viðskiptalífi hafa skapað í samfélaginu,  tel ég rétt, barnanna vegna, að minna á þessar greinar Mannréttindayfirlýsingarinnar.


25. grein

1.Hver maður á kröfu til lífskjara, sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og vellíðan hans sjálfs og fjölskyldu hans. Telst þar til matur, klæðnaður, húsnæði, læknishjálp og nauðsynleg félagshjálp, svo og réttindi til öryggis gegn atvinnuleysi, veikindum, örorku, fyrirvinnumissi, elli eða öðrum áföllum, sem skorti valda og hann getur ekki við gert.

2.Mæðrum og börnum ber sérstök vernd og aðstoð. Öll börn, skilgetin sem óskilgetin, skulu njóta sömu félagsverndar.

26. grein

1.Hver maður á rétt til menntunar. Skal hún veitt ókeypis, að minnsta kosti barnafræðsla og undirstöðumenntun. Börn skulu vera skólaskyld. Iðnaðar- og verknám skal öllum standa til boða og æðri menntun vera öllum jafnfrjáls, þeim er hæfileika hafa til að njóta hennar.

2.Menntun skal beina í þá átt að þroska persónuleika einstaklinganna og innræta þeim virðingu fyrir mannréttindum og mannhelgi. Hún skal miða að því að efla skilning, umburðarlyndi og vináttu meðal allra þjóða, kynþátta og trúarflokka og að efla starf Sameinuðu þjóðanna í þágu friðarins.

3.Foreldrar skulu fremur öðrum ráða, hverrar menntunar börn þeirra skuli njóta.

27. grein

1.Hverjum manni ber réttur til þess að taka frjálsan þátt í menningarlífi þjóðfélagsins, njóta lista, eiga þátt í framförum á sviði vísinda og verða aðnjótandi þeirra gæða, er af þeim leiðir.

2.Hver maður skal njóta lögverndar þeirra hagsmuna, í andlegum og efnalegum skilningi, er leiðir af vísindaverki, ritverki eða listaverki, sem hann er höfundur að, hverju nafni sem nefnist.

28. grein

Hverjum manni ber réttur til þess þjóðfélags- og milliþjóðaskipulags, er virði og framkvæmi að fullu mannréttindi þau, sem í yfirlýsingu þessari eru upp talin.


"Ríkisstjórnin segi af sér...

... og markaðurinn, hinn frjálsi markaður, mun leysa vandann!"

P.S. Fjandinn!  Nú er ég búinn að drekka of mikið kaffi!  Farinn að blogga einsog JárnMagga og Blair!


Tek ofan fyrir Ragnheiði Ríkarðsdóttur!

Eini virðingarverði þingmaður Sjálfgræðisflokksins.  Hún hefur tjáð sig um máttleysi þingsins síðan hún komst á þing.  Hún hefur áður krafist þess að Davíð verði vikið úr starfi.  Fyrst í október eftir því sem ég best veit. 

Bölvið sé minning Nýfrjalshyggjunnar og allt sem henni tengist!


Bloggfærslur 26. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband