Er Ásta Möller algert fífl?

Heldur hún virkilega að Vg setji flokkshagsmuni sína fram fyrir hagsmuni þjóðarinnar?  Margur heldur mig sig!

  Það má svo minna á, að þetta er konan, sem skrifaði, fyrir síðustu kosningar, grein þar sem hún fullyrti ,að forseti lýðveldisins væri "ógnun við lýðræðið."   Ástæðan, sem frau Möller taldi sig hafa, var sú að forsetinn myndi hugsanlega afhenda stjórnarmyndunarumboðið öðrum er foringja Sjálfgræðisflokksins, herr Haarde.  Þar með væri forsetinn að ógna lýðræðinu!  Gaman væri að fréttamenn ríkisfjölmiðilsins Morgunblaðsins spyrðu frau Möller um skoðun hennar á því!  Kannski óli óvinur hafi brotið stjórnarskránna, þegar hann veitti SF og Vg umboðið?


mbl.is Ásta: VG hræðist að grasrótin leiti annað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarleg afglöp í starfi næg ástæða fyrir að reka þennan:

der fuhrer
mbl.is Davíð undir væng Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn og Sjálfgræðisflokkurinn.

 

SJÁLFGRÆÐISFLOKKURINN, STJÓRNARMYNDUNARUMBOÐIР OG FORSETINN.

 

Nú eru sjálfgræðismenn farnir að atast í forsetanum enn á ný.  Á sínum tíma héldu þeir því fram að forsetinn gæti ekki skotið málum til þjóðarinnar.  Neitunarvald forsetans og málskot var viðurkennt í öllu skólakerfinu og fræðimenn voru fram að þessu  sammála um þennan rétt forsetans.  Enda getur víst orðalag ekki orðið skýrara en stjórnarskráin   um þennan rétt forsetans.  En sjálfgræðisflokkurinn hélt öðru fram og kenndi í stjórnmálaskóla flokksins.  Og þess vegna hlýtur það að vera rétt.

Svo gerist það rétt fyrir síðustu kosningar, að þingmaður flokksins, Ásta möller, skrifar grein, þar sem hún heldur því fram, að forsetinn sé ógnun við lýðræðið í landinu.  Þarna mun Ásta hafa endurómað og afhjúpað umræður,  sem áttu sér stað í innstu hringjum flokksins og á skrifstofu ritstjóra Morgunblaðsins.  Ástæðan var sú hætta að sjálfstæðisflokkurinn missti stjórnarmyndunarumboð sitt, ef stjórnin missti meirihluta sinn á þingi.  Þá skapaðist, sem sagt, sú hætta að flokkurinn yrði að skila umboðinu til forseta og hann gæti þá veitt hverjum sem verða vildi af flokkunum stjórnarmyndunarumboðið.  Þannig yrði forsetinn ógnun við lýðræðið, skv. innstu koppum í búri sjálfgræðisflokksins. Með því að fela öðrum en formanni flokksins umboð til stjórnarmyndunar.  Sjálfgræðisflokkurinn, að minnsta kosti innstu koppar, líta svo á að forsætisráðuneytið eigi að vera í þeirra höndum og engra annara.  Allt annað ógni tilveru þjóðarinnar og lýðræðinu í landinu!  Þetta hefur komið berlega fram í dag og í gær.  Það er alveg af og frá, að flokkurinn  láti forsætisráðuneytið af hendi.  Þrátt fyrir að Geir H Haarde hafi hreinlega flækst fyrir með verkstjórn sinni.  Fyrirtækin og heimilin í landinu sjá þess engin merki, að björgunaraðgerðir þeim til handa séu komnar í framkvæmd eða séu á döfinni.  Samt telja sjálfgræðismenn af og frá að láta af forsæti í ríkisstjórninni.  Þeirra er stóllinn.  Allt annað er ógnun við lýðræðið.

Nú eru gammarnir farnir að atast í forsetanum eina ferðina enn.  Og það vegna þess að hann benti á þá augljósu staðreynd að vald forsætisráðherra, sem sagt hefur af sér fyrir sig og ráðuneyti sitt, er takmarkaðaðra en annars, þrátt fyrir að stjórnin sitji sem starfstjórn.  Við það flyst þingrofsrétturinn frá forsætisráðherra til forsetans, og sitjandi forsætisráðherra hefur einnig misst stjórnarmyndunarumboð sitt til foretans til ráðstöfunnar til annarra flokka eða formanna þeirra.Þetta er einkennileg staða.  Sjálfgræðisflokkurinn telur sig eiga forsætisráðuneytið.  Ef forsetinn veitir einhverjum öðrum umboð til stjórnarmyndunar, þá er það ógnun við lýðræðið.Og forsætisráðherra starfsstjórnar hefur rétt til að rjúfa þing, bjóði honum svo við að horfa.  Þrátt fyrir fyrrgreinda takmörkun.

Annað sem gammarnir eru vitlausir yfir er að forsetinn gerði sig sekan um að tjá skoðanir sínar um hvað þyrfti að gerast í landinu til þess að sátt næðist með þjóðinni og ráðamönnum hennar.  Samt er þetta öllum ljóst jafnt almenningi, sem forsetanum.  Öllum nema gömmunum í sjálfstæðisflokknum..Sáttmáli samfélagsins hefur verið rofinn.  Friðurinn rofinn. Og lögin.  Og þeir sem rufu samfélagssáttmálann voru innstu koppar sjálfgræðisflokksins og gulldrengirnir þeirra.

Þennan sáttmála þarf að endurnýja, gera nýjan.  Forsetinn gerði sig sekan um að benda á þessa augljósu staðreynd.  Þess vegna eru gammarnir brjálaðir

Bloggfærslur 28. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband