Krónan á flot og lífeyrissjóðina uppí spilaskuldir vina Sjálfstæðisflokksins?

Skítt með almenning, sem þegar sýpur dauðann úr skel eftir hrunið!  Sjá menn verðbólguna fyrir sér!  Og svo vill Bjarni fá að gambla með sjóði lífeyrisþega nútímans og framtíðarinnar.  Hirða skatttekjur af börnunum,  skattgreiðendum framtíðarinnar.  Nú sjá bankavinamennirnir að eina féð sem til er í landinu, það fé sem ekki er búið að tapa í botnlausri spilamennsku kapítalismans, og vilja endilega komi því í súginn líka!  Ég segi nei takk!  Ég vil ekki meiri verðbólgu, og ég vil ekki gefa Bjarna og félögum lífeyrissjóðina til að borga spilaskuldir vina Sjálfstæðisflokksins!

Það er hinsvegar alveg nýtt, að Sjálfstæðisflokkurinn vilji ekki flatan niðurskurð!  Finnst einhverjum þetta trúverðug sinnaskipti?


mbl.is Svigrúm til að lækka ríkisútgjöld verulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski er bara best að gera ekki neitt?

Áhugamenn um stjórnmál vita hvaðan þessi setning er komin.  Ég er allavega viss um að stjórn Félags íslenskra stórkaupmanna veit það. Þau eru orð Geirs H. Haarde, sem virtist hafa þau að leiðarljósi lífs síns sem stjórnmálamanns.  Niðurstaðan var hrunið.  Kannski er bara best að gera ekki neitt, og láta bara markaðinn um hrunið? 
mbl.is Krefjast lausnar á Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svalir í annarlegu ástandi?

Þá er ekki nema von að maðurinn dytti fram af.

 

 "Maðurinn var í annarlegu ástandi en hann er ekki búsettur þar sem óhappið varð."Mbl.is. Er þetta eitthvað málinu viðkomandi?

Þetta er skrítna frétt vikunnar!  Ekki atburðurinn heldur fréttin!


mbl.is Féll fram af svölum í annarlegu ástandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hef mínar efasemdir.

Þórey er tengdadóttir Ragnheiðar Ríkharsdóttur þingkonu, sem sumir segja að sé í vitlausum flokki.  Kannski á það sama við um Þóreyju.  En kannski er þetta bara einsog hvert annað djobb.
mbl.is Ráðin kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leyniskjal?

Nú á tímum tortryggninnar vekja eftirfarandi orð í tilkynningu forseta Alþingis þá spurningu, hvort halda eigi skýrslunni leyndri að hluta eða í heild. Mun stjórnmálaelítan, vegna hagsmuna sinna og valda, halda skýrslunni leyndri fyrir almenningi, og bera fyrir sig þjóðarhagsmuni?
„Jafnframt vill forseti upplýsa að á vettvangi forsætisnefndar og formanna þingflokkanna hefur verið fjallað um hvernig standa á að þinglegri meðferð á skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Samstaða er um mikilvægi þess að sá farvegur verði markaður fyrir fram áður en skýrslan verður gerð opinber. Því má vænta þess að á næstu dögum verði lögð fram þingsályktunartillaga sem taki á þessu atriði. Sú tillaga mun ganga út frá því að skipuð verði sérstök þingmannanefnd sem falið verði að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndarinnar.“
Í upphafi starfa rannsóknarnefndarinnar var sagt, að hún myndi halda fréttamannafundi reglulega á starfstímanum.  Ekki hefur borið á því, eða hvað?

mbl.is Rannsóknarskýrslu seinkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýsköpun?

Er allt orðið nýsköpun, hversu gamalt og tuggið það er?  Eða opna matvörubúð, er það nýsköpun?

Ég tek undir með Haraldi Haralds.  Jón Sullen á að hætta þessu væli!  Annaðhvort opnar hann þessa matvörubúð á heiðinni eða ekki!

Ég var nú að spá í að skrafa soldið um viðtalið við Friðrik, lúser í búðarrekstri, en ég nenni því varla.  Það er varla eyðandi orðum á fólk sem telur viðskiptavini Bónuss Maóista, Stalínista eða Nazista svonu upp til hópa.  Eftir þá romsu hans steinhætti ég að taka mark á einu orð, sem frá hans kjafti kom!

Ég veit ekki hverslags "manía" er skollin hér á í sambandi við Bónus.  Mér er slétt sama hversvegna ódýrara er að versla hjá Jóa.  Og mér finnst með ólíkindum að kenna vinnu brögðum  hans um hátt vöruverð á Íslandi.  Ef einhver getur boðið betra verð, hversvegna í skollanum gerir hann það ekki?  Og án þess að væla!

P.s.  Ég heyrði það í útvarpinu í gær, að verð í Krónunni væri hækkað eftir lokun hjá Bónus.  Ætli geti verið að þetta sé rétt?  Ef svo er, er það löglegt?  Eða má Krónan allt?  Kannski er það löglegt en siðlaust, einsog flest í þessu þjóðfélagi auðhyggjunnar!


mbl.is Alvarlegt fyrir nýsköpun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband