Héðan í frá...

...eru allir ákærðir beðnir um að játa, beint og milliliðalaust!  Enda lögfræðingastéttin upptekin við að maka krókinn í rústunum eftir "auðmennina."
mbl.is 108 milljóna kostnaður vegna Baugsmáls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styttist nú í ASÍ-þing?

Euro pris og lof og dýrð forseti ASÍ bara með læti?  Eftir að hafa bugtað sig og beygt fyrir auðvaldinu, síðan honum var lætt í forsetastólinn lætur Gylfi loks í sér heyra. Nú þykir honum sæma að láta heyra í sér svo um munar.  Þegar verið er að reyna að bjarga því sem bjargað verður eftir hrun góðærisins sem honum tókst ekki að nýta fátækasta hluta ASÍ til hagsbóta, þessa hóps á launum undir fátæktarmörkum.  Það hlýtur að vera ASÍ-þing í vetur!
mbl.is Ef þið viljið stríð þá fáið þið stríð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Norðmenn betri lánardrottnar en aðrir?

Ein helsta hættan fyrir þjóð sem lendir í efnahagshruni, er skuldagildran!  AGS og Alþjóðabankinn hafa lengi leikið þann leik, að lána og lána þjóðum sem lenda í efnahagskröggum stórfé.  Á endanum verða svo skuldirnar það miklar, að engin von er til þess að nokkurn tíma sé hægt að greiða þær.  Þessvegna þarf að umgangast öll lán með töngum.  Freistast alls ekki til að nota það fé sem fengið er að láni.

Mig grunar að hér sé Sigmundur í ævintýraför aðeins til að slá sjálfan sig til riddara.  Hingað til hafa Norðmenn ekki verið neitt sérlega viljugir.  Létu t.d. undan þrýstingi AGS og afgreiddu ekki 100 milljarða lán til okkar í haust.  Stoltenberg hefur sagt að ekki sé von til að breyting verði á stefnu Norðmanna.  En kannski hér hafi orðið breyting á?  Hver veit?

Það setur að manni ugg, þegar maður veltir fyrir sér þeim möguleika, að helmingaskiptaflokkarnir með þessa popularista í formannssætum komist til valda.  Með allt þetta lánsfé til að "kaupa" sér vinsældir kjósenda og þó sérstaklega til að útdeila til nýrra S-hópa og manna "í talsambandi við flokkinn."  Flokksgæðingar helmingaskiptaflokkanna eru nefnilega enn á kreiki!

--------------

Þeir eru að  verða svolítið kostulegir, þessir kumpánar formenn helmingaskiptaflokkanna, þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Ben.  Sigmundur minnir á uppreisnargjarnan ungling á erfiðu mótþróaskeiði.  Bjarni Ben slær úr og í, og segir eitt í dag og annað á morgun.  Lengst af hefur hann haldið því fram að AGS-endurskoðunin og afgrreiðslan á láninu strandaði á að ríkisstjórnin hefði ekki staðið við áætlunina fyrir sína parta.  Ekki hefur hann orði hallað á AGS.  Nú er hann skyndilega búinn að fá altalaðar upplýsingar um AGS, að AGS vinni fyrir stórþjóðirnar sem eiga aðild að honum, og sé einskonar handrukkari þeirra.  AGS sé að rukka fyrir Breta og Hollendinga!  Sjaldan lýgur almannarómur! 

Frá því í vetur er Barni búinn að endurtaka aftur og aftur að ríkisstjórnin sé ekkert að gera og  að ástandið sé bara að versna og versna.  Í Kastljósinu hér um kvöldið kvað alltíeinu við annan tón, þegar Bjarna vantaði rök fyrir að óhætt sé að reka AGS (hann trúir því sem sagt ennþá að AGS sé alþjóðleg félagsmálastofnun).  Nú varr landið farið að rísa og gott ef ekki atvinnulífið farið að taka við sér!  Hvort er það?  Og er þá ekki ríkisstjórnin þó eitthvað að gera?  Eitthvað smá?

 


mbl.is Mikill velvilji í garð Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband