13.3.2009 | 13:15
Kaupþing og fleiri?
Kannski eru lánamál stjórnenda og eigenda bakanna og annarra stórfyrirtækja ekki talin með? Bara smáþjófarnir?
![]() |
Veruleg fjölgun þjófnaða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.3.2009 | 13:08
Úrslit í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins skipta engu máli! Gefum honum frí fyrir fullt og allt!
Hvaða rugl er þetta í brottrekna sveitastjóranum um að úrslitin skipti svona miklu máli? Þessum flokki, sem hlaðið hefur undir allskyns afætur í samræmi við stefnu sína, nýfrjálshyggjuna, ber að halda frá landsstjórninni. Það er hreinlega þjóðarhagur sem krefst þess! Flokkurinn, sem telur stefnu sína ekki hafa brugðist, á ekkert erindi við þjóðina. Þessa þjóð, sem flokkurinn hefur komið á kaldan klaka með nýfrjálshyggju sinni í ríkisstjórn í 18 ár! Flokkur, sem hefur það á stefnuskrá sinni að þeir sem minna mega sín beri byrðarnar fyrir hina ríku! Flokkur arðráns og kúgunar!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)