Fyrrverandi þingmaður í atvinnuleit skýtur sig í fótinn!

 

"Sigurður Kári Kristjánsson

Þriðjudagur, 21. apríl 2009

Tilviljun?

Í dag slettu grímuklæddir menn skyri og grænni málningu á kosningaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins.

Ætli það sé tilviljun að þessir grímuklæddu menn skyldu ekki láta til skarar skríða á kosningaskrifstofum Vinstri grænna?

Sigurður Kári."

 

"Samband róttækra jafnaðarmanna hefur lýst sig ábyrg fyrir skyrárás á kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í dag.

Grímuklædd ungmenni slettu skyri, málningu og slori á kosningaskrifstofum Samfylkingar, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í dag.

Samkvæmt því sem fréttastofan kemst næst var fyrst ráðist á skrifstofu Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í morgun. Fjögur ungmenni, þrír piltar og ein stúlka, voru að verki. Líklega var sami hópur að verki í öllum tilvikum að sögn lögreglu.  Að sögn sjónarvotta var skvett á starfsfólk á skrifstofunum, tölvur, málverk, sófa og bíla fyrir utan.  

Í tilkynningu sem sögð er vera frá Sambandi róttækra jafnaðarmanna segir: Samfylkingin brást jafnaðarmönnum um allan heim með því að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og með því að slíta ekki stjórnarsamstarfinu fyrir daga Búsáhaldabyltingarinnar. Það er ekki hægt að taka mark á Jafnaðarmannaflokki sem vinnur svona náið með hægri flokki. Við köllum eftir nýrri Samfylkingu sannra, róttækra jafnaðarmanna og lýsum yfir hatrammri áframhaldandi baráttu gegn Samfylkingunni og valdapoti hennar. Við gerðum ekki byltingu til þess að vera áfram höfð að fíflum."

 

 

frettir@ruv.is


Enn Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjórna?

Það er ekki í verkahring Ríkisendurskoðunar að rannsaka stjórnmálaflokka.  Það væri nær að það færi fram lögreglurannsókn á þessu möndli öllu vegna gruns um mútur og mútuþægni!  En kannski er þetta batterí allt saman ófært um slíkt.  Ég sé ekki nokkra ástæðu til að hlífa stjórnmálamönnum í þessu máli!
mbl.is Taka undir að Ríkisendurskoðun skoði fjármál flokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fær þá Sjálfstæðisflokkurinn að kenna á því?

Mér sýnist, þegar ég skoða breytingarnar milli vikna að kosninga"barátta" délistans bæti um betur í þá vera, að allan apríl mánuð hefur fylgi hans verið að síga.  Vitað var að fylgi délistans myndi minnka, en það er sérstaklega ánægjulegt að sjá að málflutningur hans dregur enn úr fylgi hans!  En 15 þingmenn fyrir þennan flokk  er alltof mikið samt.  Spurning um að  fresta kosningunum?  Vonandi verða þingmenn délistans ekki fleiri en 12 þegar talið verður uppúr kjörkössunum og jafnvel það er of mikið!

valhöll  

Til sölu?  Allt er falt, ef rétt verð er í boði!  Líka þingmenn Sjálfstæðisflokksins!


mbl.is O-listi fengi fjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn bullar Bjössi!

Hvernig dettur délistanum með Bjarna Nonsense í fararbroddi í hug að ESB semji við okkur um upptöku Evru, ef það er okkur  svona andsnúið, einsog Bjössi bullukollur lýsir svo fjálglega?  Gott ef þetta er bara ekki nauðgun á almennri skynsemi!
mbl.is Dólgsleg árás, segir Björn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. apríl 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband