Hin takmarkaða lýðræðisást Bjarna EnnEins.

Forsetinn á að staðfesta Icesave

mynd
Bjarni vill að forsetinn staðfesti ríkisábyrgðina á Icesave samningunum. Mynd/ Anton Brink.

Heimir Már Pétursson skrifar:

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins vill að forseti Íslands staðfesti lög um ríkisábyrgð vegna Icesave og telur að forsetinn eigi reyndar aldrei að ganga gegn vilja Alþingis.

Nú er verið að safna undirskriftum á vefnum kjósa punktur is við áskorun til Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands um að staðfesta ekki nýsamþykkt lög Alþingis um ríkisábyrgð vegna Icesave samninganna við Breta og Hollendinga.

Í gær höfðu á sjöunda þúsund manns skrifað undir áskorunina sem verður afhent forsetanum á morgun. Ólafur Ragnar er eini forseti lýðveldisins sem synjað hefur lögum staðfestingar, en það gerðist þegar hann neitaði að staðfesta fjölmiðlalögin árið 2004. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir að forsetinn eigi að staðfesta lögin.

„Ég er þeirrar skoðunar að hann eigi ekki að beita þessari heimild og er reyndar þeirrar skoðunar að í það eina skipti sem henni hefur verið beitt hafi ekki verið réttur grundvöllur fyrir þeirri beitingu," segir Bjarni. Hann sé á móti því að forsetinn beiti synjunarvaldinu.

„Mér finnst það eiga sérstaklega við núna vegna þess að hér er meirihlutaríkisstjórn sem hefur klárað málið og það á ekki að fara gegn þinginu," segir Bjarni Benediktsson.


40. grein Stjórnarskrárinnar þverbrotin með komu AGS til landsins?

40. gr. Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum. Ekki má heldur taka lán, er skuldbindi ríkið, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt lagaheimild.

Hve oft hefur þessi grein Stjórnarskrár Lýðveldisins verið brotin undanfarna mánuði, eða síðan hrunið varð?  Og hve oft hafa menn ætlað sér að brjóta hana?  Er aðkoma AGS að málum hér á landi dæmi um það?  Eða ætluð sala á aðgangi að orku landsins til einkaaðila og útlendra auðmanna?

Sjá fróðlegan greinar á þessum síðum:      www.kreppan.blog.is     &   www.skula.blog.is 


Bloggfærslur 30. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband