17.2.2010 | 17:05
Misráðið kjaftablaður Viðskiptaráðs!
Ætli Viðskiptaráði væri ekki vænlegra að hafa hljótt um sig eftir það sem á undan er gengið! Eftir öll Ráðin, sem leiddu meðal annars til Hrunsins. Stjórnlaus kapítalismi var og er efstur á óskalista Viðskiptaráðs. Eftir óráðum þess var endalaust hlaupið af fyrri ríkisstjórnum. Ráð sem leiddu til stjórnleysisins, sem leiddi svo til Hrunsins!
![]() |
Misráðin skattastefna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.2.2010 | 16:32
Siðlaus aðför á hendur öryrkjum og lífeyrisþegum. - Harkalegar innheimtuaðgerðir!
Siðlaus aðför á hendur öryrkjum og lífeyrisþegum. - Harkalegar innheimtuaðgerðir!
Sæl, vinsamlega komið eftirfarandi á framfæri við þá sem eiga um sárt að binda vegna niðurskurðar sem hart hefur bitnað á öryrkjum, lífeyrisþegum og aðstandendum þeirra eða þá sem vilja réttlæti og jöfnuð í samfélaginu.
- Því miður er það svo að sjálfsvíg og vanlíðan tengjast óhjákvæmilega niðurskurði og harkalegum innheimtuagerðum sem fylgja of oft, í kjölfarið.-
- Mótmælastaða fyrir framan Tryggingastofnun, Laugavegi 114, fimmtudaginn 18. febrúar kl. 14.30. -
- (Skáhallt á móti). - Við sláum tvær flugur í einu höggi!
- Mótmælastaða fyrir framan Intrum/Lögheimtuna Laugavegi 99, 18. febrúar kl. 15:15. -
Ólafía Ragnarsdóttir, Háttvirtur Formaður Aðgerðarhóps Háttvirtra Öryrkja.
Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir, Aðgerðarhóp Háttvirtra Öryrkja.