8.4.2010 | 20:45
Fátækt á Íslandi er pólitísk ákvörðun allra flokka!
Ég hlustaði á Hörpu Njáls tala um fátækt á RÚV. Hafi ég skilið hana rétt, þá er fátækt á Íslandi einfaldlega afleiðing af pólitískri stefnumótun nákvæmlega einsog sífelldur peningaskortur í heilbrigðiskerfinu. Í eina tíð urðu allir stjórnmálaflokkar sammála um að "aðvitað" þyrfti að spara (skera niður) í heilbrigðsiskerfinu. Öfugt við Skandínava, sem forða þjóðfélagshópum með lágar tekjur frá fátækt, höfum við samþykkt fátæktina með þögn, aðgerðum og aðgerðarleysi! Við höfum ekki beitt skattakerfinu til tekjujöfnunar! Það er til marks um áhugaleysið hér á landi um þessi mál, að ég þurfti að leita lengi að bloggfærslum um málið. Fréttir af þessu máli er ekki að finna á Smugunni. Vinstrigrænir bloggarar eru áhugalausir um málið! Hvað segir það okkur? Jú, sá flokkur er lika búinn að samþykkja ástandið! Meirihluti svokallaðra jafnaðarmanna á íslandi hefur ekki hugmynd um hvað jafnaðarstefna er, og hefur heldur ekki áhuga á að vita það! Sósialistar eru vandfundnir og undir sömu sök seldir! Hér ríkir Thatcher-ismi: Markaðurinn sér um fátæklingana! Og stjórnmálaelítan er öll sammála um að hafa það þannig! Fátæktin er ekki hennar mál, heldur mál góðgerðafúsra kellinga!