28.5.2010 | 15:44
Ekki frammistöðu ríkisstjórnarinnar?
Ég hefði nú frekar haldið það! Þessi ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Steingríms er ekkert annað en leppstjórn AGS, einsog lesa má um í þessari grein Gunnars Skúla:
http://www.smugan.is/pistlar/adsendar-greinar/nr/3411.
Og hér má svo lesa viljayfirlýsingu Leppstjórnarinnar:
http://www.efnahagsraduneyti.is/media/Acrobat/Letter_of_Intent_2nd_review_-_o.pdf
Hvar þessi margumtalað Skjaldborg heimilanna! Felst hún í að fresta endalaust aftökum á almenningi? Og umsaminni hlýðni við AGS? Að þrengja kost almennings? Ræna heimilum almennings? Selja auðlindir þjóðarinnar í hendur einkaaðilum? Einkavæða samfélagsþjónustuna, s.s. heilbrigðis- og menntakerfið? Ferill AGS er ljós. AGS sleppir ekki hendi af þjóðum fyrr en allt þetta hefur verið gert. Heilu samfélögin hafa verið lögð í rúst, og við skulum bara gjöra svo vel og horfast í augu við það! Verði þessi leppstjórn AGS öllu lengur við völd endurtekur sagan sig hér: Íslenskt samfélag verður lagt í rúst! Af AGS og leppstjórn hans! Ekki af Jóni Gnarr eða Níumenningunum sem nú hafa verið dregnir fyrir dómstól yfirstéttarinnar!
Lifi Fokkíng Byltingin! Bless Jóhanna! Farðu með AGS í fúlan...
![]() |
Fylgið of lítið í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)