4.1.2010 | 15:37
Barnið á heimilinu hefur skoðun á málinu.
Hún skilur bara ekkert í þessari verkkvíðni forsetans! Það geti bara ekki verið svona erfitt fyrir hann að skrifa nafnið sitt! Ég er alveg sammála henni! Ég skil bara ekkert í þessu lengur!
Stjórnin hefur ekki leyfi til að fara frá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Segðu Ásu að forsetinn hafi verið að æfa hestamennsku á tréhestinum hennar Dorritar sem hossast alveg óskaplega mikið þegar hann stilltur á mesta hraða. Svo skeði óhappið. Ólafur hafði stillt hraðann á hægt brokk og allt gekk bara vel.
Þá hringir farsíminn og Ólafur losar aðra hendina til að sjá hver hafi hringt. Á símanum er gemsanúmer Davíðs Oddssonar en milli þessara gömlu vinnufélaga hefur ríkt alkul um nokkurra ára skeið.
Þegar Ólafur sér þetta þá bregður honum óskaplega og rekur sig óvart í hraðastillinguna með þeim afleiðingum að klárdjöfullinn fór á fullt og Ólafur féll af baki. Vart þarf að orðlengja að Ólafur brotnaði á báðum höndum sem er hans hæsta skor en dregur náttúrlega óþægan dilk á eftir sér.
Þannig að nú er Ólafur ófær um að undirrita lögin og einsýnt að þessu grábölvuðu lög ná ekki fullnustu fyrr en í fyrsta lagi eftir nokkrar vikur.
Árni Gunnarsson, 4.1.2010 kl. 18:37
Svona langa útskýringu get ég nú ekki munað, Árni minn!
Auðun Gíslason, 5.1.2010 kl. 03:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.