Skađinn er löngu skeđur!

Ég verđ ađ segja , ađ mér finnst heilög Jóka taka skrýtinn pól á hćđina!  Skađinn er löngu orđinn!  Mér er slétt sama um ţetta AGS og helvítis Evrópusambandiđ, enda bćđi valda- og kúgunartćki gírugra alţjóđlegra kapítalista.  Evrópusambandiđ hefur samt orđiđ sér úti um fallegri sauđargćru!

Ég hef meiri áhyggjur af ađ almennt er orđspor Íslendinga orđiđ ţannig, ađ orđ okkar og gerđir, s.s. undirskriftir, eru ađ engu hafandi.  Ţjóđ, sem umgengst ađra međ slíku virđingarleysi og hroka sem ţessir útrásarbófar gerđu, og svo íslensk stjórnmálastétt/elíta fyrir og eftir hrun, er ekki treyst!  Og međ réttu!  Stjórnmálaelítan hefur síđan haustiđ 2008 fariđ um lönd skrifandi undir samninga og yfirlýsingar, sem eftir heimkomu er kallađ ađ séu minnismiđar!  Svona einsog gulu miđarnir, sem hćgt er ađ smella á rammann á tölvuskjánum eđa á ísskápinn!  "Jóna frćnka á afmćli á sunnudaginn...kaupa mjólk og rúgbrauđ..." o.s.frv.  Ađ mađur tali nú ekki um reisur forystumanna ţjóđarinnar rétt fyrir hrun.  Ţegar ţau lugu ţví uppá gátt, ađ hér vćri sko allt í lukkunnar velstandi, bankakerfiđ traust einsog jarđarkringlan, ríkissjóđur skuldlaus gćti sko hlaupiđ undir bagga vildi svo ólíklega til ađ "hin alţjóđlega fjármálamiđstöđ" (jú, ţađ fyrirbćri finnst í stjórnarsáttmála Geirs og Ingibjargar) klikkađi á ţví!  Og Seđlabankastjórinn bćtti aldeilis álitiđ, ţegar hann talađi einsog sauđdrukkinn sveitadurgur í réttunum í afdalnum:  Viđ borgum sko ekki...!  Hélt mađurinn ađ enginn vćri ađ hlusta nema heiladofinn söfnuđurinn í Valhöll?

Treystir einhver svona fólki?  Ég segi NEI!  Og ţessvegna mun ég segja JÁ í ţjóđaratkvćđagreiđslunni!


mbl.is Icesave skađi ekki alţjóđleg tengsl
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband