Þjóð í pattstöðu! Íslendingar eru sjálfum sér verstir!

Hrunflokkarnir, Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn, óttast innihald skýrslunnar. Sjálfstæðismennirnir, Páll og Tryggvi, virðast hlýða valdaklíku FLokksins og draga birtingu skýrslunnar. Þessar frestanir eru óþolandi.
Hér skrifa menn að landið sé stjórnlaust barbarí. Er það furða? það er nefnilega þannig hjá venjulegu fólki, að á erfiðleika- og krísutímum þjappa þjóðir sér saman og standa við bakið á stjórnvöldum. Ekki á Íslandi! Það hlýtur að vekja fleiri en mig til umhugsunar, að Sjálfstæðismenn berjast einsog óðir hundar gegn Icesave-samkomulaginu með Framsóknarmönnum. Samt er það talsvert mikið betra en samkomulagið sem þeir voru með í undirbúningi. Meginatriði þess undirbúnings má lesa í “Memorandum of understanding” 11/10 ‘08, sem Árni Matthíasson skrifaði undir með samþykki þáverandi ríkisstjórnar. Drögin, þó minnisblað sé, segja klárlega hvað var í undirbúningi. Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn hafa blásið hér til ófriðar gegn þessum samningi, sem þeir þó unnu að í sumar, en hlupu svo frá! Indefence-hópur Framsóknarflokksins hefur tekist að tromma upp ófriðinn gegn ríkisstjórninni, sem kosin var af meirihluta þjóðarinnar síðastliðið vor. Íslendingar standa ekki saman í erfiðleikunum, hér stofna menn til ófriðar í nafni þjóðarinnar. Undarlegur andskoti. Takist X-D og Framsókn að koma stjórninni frá munu þeir ganga frá Icesave málinu með síst betri niðurstöðu, það er ljóst! Við Íslendingar þurfa ekki óvini. Við erum okkar versti óvinur! Er þjóðin búin að gleyma, hver stefna stjórnarandstöðuflokkanna er? Stefnan sem leiddi þjóðina fram af bjargbrúninni! Stefnan sem leiddi til hrunsins? Kannski er það stefnan sem þjóðin vill að þjóðin fylgi. Skv frjálshyggju hrunflokkanna er eina leiðin útúr kreppu að skera niður, aðeins að skera niður. Skera allt niður við trog. Má benda á málflutning fulltrúa Framsóknar í Seðlabankanum, skoðanabróður Sigmundar. “Ekki taka nein lán, skera niður, skera niður.” Engar fjárfestingar og engin uppbygging! Stjórnarandstaðan hefur nú komið stefnu sinni á í landinu með ófriðarfagnaði sínum. Meðan Icesave-málið er óafgreitt verður hér engin uppbygging og engar fjárfestingar. Aðeins meiri niðurskurður. Menn mega mín vegna kalla staðreyndir hræðsluáróður. þannig er það bara! Hér stofna menn til ófriðarfagnaðar til að svala valdafíkn sinni. Sundra þjóðinni, ekki með hagsmuni þjóðarinnar í huga. Nei, aðeins til að svala valdafíkn sinni. Meðan þjóðir þjappa sér saman á erfiðleikatímum, þá blása Íslendingar til innbyrðis ófriðar og bræðravíga. Merkilegur andskoti! En kannski eiga Íslendingar ekki betra skilið!
mbl.is Utan til funda vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband