Icesave deilan leyst!

 

Var ekki búið að leysa þessa deilu?  Það  sagði mogginn 16. nóvember 2008!

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/16/icesave_deilan_leyst/

Þar er ekki þorandi að copy-pasta fréttir af mogga.  Þar er allt orðið sérstaklega merkt höfundarréttarvarið!

Leyfi mér samt að copy-pasta þessa snilld eins Sjálfstæðismannsins á blogginu, sem nú hamast einsog óður á móti Icesave samningum  núverandi ríkisstjórnar.  Það er mjög fyndið að lesa sum bloggin við fréttina í ljósi stöðunnar í dag!  Einsog sjá má spyrja sumir bloggarar, hvort hægt sé að gera svona samning án þess að bera hann fyrst undir Alþingi!

"Íslenska þjóðin hefur vaxið í alþjóðlegu tilliti vegna þessarar gjörðar, nokkuð sem bera að virða við Geir og hans Ríkisstjórn. Batnandi manni er best að lifa. Smásigur í alþjóðlegu tilliti er betri en enginn."

 

Hér viðhengið við frétt moggans:

RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS

FRÉ T TAT ILKYNNING

Samkomulag næst við Evrópusambandsríki

Greiðir fyrir láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF)

Mikilvægur áfangi að lausn deilunnar um innstæðutryggingar

Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra

bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við

nokkur Evrópusambandsríki, sem komust á fyrir tilstilli Frakklands sem nú fer með formennsku í

Evrópusambandinu, leiddu til samkomulags um viðmið sem lögð verða til grundvallar frekari

samningaviðræðum.

Samkomulagið felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur

mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Endanlegur kostnaður ríkissjóðs

vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innstæðutryggingar af eignum bankanna.

Einnig er kveðið á um að Evrópusambandið, undir forystu Frakklands, taki áframhaldandi þátt í

að finna lausnir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármálakerfi og efnahag.

Aðilar eru ásáttir um að hraða fjárhagslegri aðstoð við Ísland, þar með talið samþykkt lánafyrirgreiðslu

sem beðið hefur samþykktar stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) undanfarnar vikur.

Erindi Íslands hjá IMF verður tekið til afgreiðslu hjá sjóðnum miðvikudaginn 19. nóvember.

Umsamin viðmið

1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og

hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um

Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB.

Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í löggjöfina

um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið

og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.

2. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samningaviðræðna

þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum

hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og

knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármálaog

efnahagskerfi sitt.

3. Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt

í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.

Reykjavík, 16. nóvember 2008


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband