Málaliðaher?

Eitthvað var þetta skúffukompaní að brölta með sitt fólk í Afganistan og víðar.  Varla verið að aðstoða við "heræfingar"  Kannski  hafa þeir verið að aðstoða BNA í stríðinu gegn hinu illa.  Stríði sem felst í því að stráfella alþýðufólk.
mbl.is VG hafnar alfarið einkaflugher
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Alveg er það hryllilegt að þessir vinstri andskotar skuli alltaf koma eins og sauðarleggurinn úr fjósbitanum og mótmæla þegar vestrænir vinir okkar bjóðast til að gera okkur gildandi í því göfuga hlutverki að þjálfamenn í að drepa fólk.

Hvernig hefði hann Ólafur sálugi Tryggvason átt að kristna Noreg á einu augabragði ef vinstri grænir hefðu verið þar til að flækjast fyrir?

Ólafur þurfti auðvitað að drepa ósköpin öll af konum og börnum og gelda og blinda helling af óþjóðalýð áður en takmarkinu var náð.

Eftir það var engri konu nauðgað í Noregi nema eftir að hún hafði beðið Maríubæn fyrir sér og nauðgaranum.

Og ævinlega gert krossmark yfir manneskjunni á eftir.

Mér finnst mikið liggja við að við seljum Hollendingum aðgang að Beisnum þarna suðurfrá því ég er handviss um að bráðum finnast þjóðir sem þarf að drepa svo friður komist á í heiminum.

Þeir skilja það ekki þessir vinstri bjálfar að við höfum skyldur við heimsfriðinn!

Árni Gunnarsson, 18.3.2010 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband