16.5.2007 | 22:34
Egill Helgason í "Íslandi í dag"
Stórkanónan Egill Helgason er alltaf ađ verđa opinskárri um fordóma sína. Í sömu setningunni og hann tjáir sig um mávapláguna í borginni talar hann um ađ útrýma ţurfi annarri "plágu" í miđbćnum sínum. Ţađ er ógćfufólkiđ, sem fer á kreik ţegar hlýnar í veđri. Fólkiđ sem átti m.a. athvarf í Byrginu. Sem sagt veikir alkahólistar og fíknaefnaneytendur. Ekki veit ég hvernig hinn nýi lögreglustjóri Reykvíkinga á ađ útrýma ţessum manneskjum úr miđbćnum hans Egils fyrir hann. Reyndar held ég, ađ Egill hafi í ţetta skiptiđ, sem oftar, talađ áđur en hann hugsađi. En svona grunnhyggnislegar yfirlýsingar falla sjálfsagt í kramiđ hjá "vínóunum" vinum Egils.
Ég vil benda Agli Helgasyni á, ađ ţađ eru manneskjur sem hann er ađ tala um. Veikar manneskjur, sem ekki völdu sér ţađ hlutskipti ađ verđa sjúkdómi sínum ađ bráđ. Og alls ekki völdu sér ađ fara jafnilla útúr sjúkdómi sínum og raunin er. Manneskjur sem samfélagiđ hefur brugđist. Fólkiđ sem samfélagiđ brást núna síđast í vetur međ undarlegum ađferđum sínum viđ ađ "leysa" Byrgismáliđ. Fólkiđ sem ekki er velkomiđ á Njálsgötuna. Manneskjur sem eru haldnar sjúkdómi sem leiđir á endanum til geđveiki og/eđa dauđa ađ undangengnum miklum ţjáningum, andlegum og líkamlegum.
Ef til vill finnst einhverjum, ađ ég sé ađ gera veđur útaf smámunum. En ţessu fáu orđ, sem féllu í "Íslandi í dag" um útigangsfólkiđ í miđbćnum, eru til ţess eins fallin ađ kynda undir fordómum gagnvart manneskjum, sem búa viđ erfiđara hlutskipti í lífi sínu en tárum taki. Og gleymum ekki ađ orđ meiđa!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:46 | Facebook
Athugasemdir
já ţetta er góđ grein en ţađ er til lausn á ţessu ađ láttu JESÚS hjálpa sér og trúa ţví.og líka vera í AA ţađ hjálpa ALKA. og lesa AA bók
KV Gulli Dóri
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 16.5.2007 kl. 23:26
Góđur pistill hjá ţér Auđun og ég tek algjörlega undir orđ ţín. Ţađ er samfélagiđ sem bregst ţessu fólki. Svo vil ég bara ekki ađ sértrúarsöfnuđir eđa trúfélög yfirhöfuđ fái ađ međhöndla veikt fólk.
Ljótt ađ tala svona um veikt fólk eins og Egill gerir.
Margrét St Hafsteinsdóttir, 17.5.2007 kl. 01:40
já samála ţig kona góđ
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 18.5.2007 kl. 20:12
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.