12.10.2007 | 13:52
Hverjir eiga auðmennina?
Sjálfstæðismenn segja Björn Inga ganga erinda auðmanna. Má vera rétt, en Sjálfstæðismenn hafa fram til þessa ekki fúlsað við því að sinna sérstökum þörfum þeirrra. En kannski eru áhyggjur þeirra skiljanlegar. Þeir vita það best sjálfir og kannski vilja þeir vera einir um hituna. Missa enn einn spóninn úr aski sínum. Einn úr hópi litlu borgarstjóranna sjö í Sjálfstæðisflokknum, Júlíus Vífill er einn þessara auðmanna ef ég man rétt. Einn af fyrrum eigendum I. Helgasonar og fyrrverandi forstjóri sama fyrirtækis. Áhyggjufullir menn dvergarnir sjö!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:54 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.