12.10.2007 | 14:07
Samkvæmur sjálfum sér!
Heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, er maður samkvæmur sjálfum sér! Nú hefur hann sett Pétur Blöndal erkióvin velferðarþjóðfélagsins númer eitt í að endurskipuleggja heilbrigðiskerfið. Pétur Blöndal hefur ekki farið leynt með andúð sína á samhjálp og samhygð í þjóðfélaginu svo jaðrar við hreint ofstæki. Og fyrirlitning hans á þeim sem hafa skerta starfsorku hefur ekki farið framhjá okkur lífeyrisþegum. Hvað verður næst úr þessum herbúðum? Verður Lalli Jones orðinn varðstjóri hjá Ríkislögreglustjóra og Bjarni Bakkus talsmaður ríkisstjórnarinnar í forvörnum gegn fíkniefnum?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.