9.2.2008 | 17:32
Hvar er pólitísk ábyrgðtilfinning borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins? Eða er allur sá flokkur siðlaust skítapakk?
Það má rifja það upp, að fyrstu viðbrögð borgarstjórnaflokks Sjálfstæðisflokksins, þegar REI-klúðrið kom uppá yfirborðið, var að samþykkja orðinn hlut (samning OR, REI og GGE) og selja REI sem fyrst. Með öðrum orðum átti að láta sem ekkert hefði athugavert gerst og láta síðan málið hverfa með sölunni á REI. Með öðrum orðum stinga höfðinu í sandinn. Og ekki nóg með það. Við áttum víst öll að stinga höfðinu í sandinn með þeim líka! Þegar búið var að reyta eignir og þekkingu af OR, umbuna embættismönnum með dúsum (kaupréttarsamningum), ljúga að kjósendum átti að láta málið hverfa með því að einkavinavæða REI. Ég spyr því: Hefur borgarstjórnarflokkur og forysta Sjálfstæðisflokksins enga ábyrgðartilfinningu og enga siðferðiskennd! Það er ekki nóg að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson taki pokann sinn. Það á allur borgarstjórnarflokkurinn að gera líka, svo og allt yfirmannasettið í OR og REI. Það heitir að taka afleiðingum gerða sinna!
REI - ætlar Sjálfstæðisflokkurinn ekki að axla ábyrgð? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:42 | Facebook
Athugasemdir
jæja vinur Auðun stór leikur á morgun man u...man c...
í enska Gulli Dóri
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 9.2.2008 kl. 18:20
Áfram KR.
Auðun Gíslason, 9.2.2008 kl. 18:39
Auðun hvað er það áfram MANCHESTER UNITED
Gulli Dóri
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 9.2.2008 kl. 18:45
ok fór 1...... 2...... fyrir man c
en var góður leikur svona er boltinn en manchester united eru bestir
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 10.2.2008 kl. 15:31
Áfram Villi villti!
Auðun Gíslason, 10.2.2008 kl. 18:48
áfram ég
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 10.2.2008 kl. 19:24
áfram Drottinn Jesús
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 10.2.2008 kl. 19:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.