19.5.2009 | 13:26
Harmagrátur kapítalistans.
það er kostulegt að fylgjast með vælinu í hamfaraliðinu þessa daga, þegar verið er að loka spilavítinu. Menn sem hafa lánað sjálfum sér peninga og tekið óheyrilega áhættu í allskyns braski í áhætturekstri kvarta sáran, þegar gengið er að þeim vegna lánanna. Héldu þeir að þeir fengju allar sínar skuldir niðurfelldar, að sérmeðhöndlunina, sem þeir hafa notið, héldi áfram? Við hverju bjuggust þeir? Og svo segjast þeir vera fórnarlömb. Og þá fórnarlömb hverra? Ytri aðstæðna? Voru það ytri aðstæður, sem véluðu þá til að taka lánin, hætta fyrirtækjum sínum með óhóflegum lántökum?
Á sínum tíma tóku afbrota- og félagsfræðingar upp á að telja þjófa og aðra krimma, jafnvel nauðgara og morðingja, fórnarlömb. Þetta er kannski angi af þeim fræðum?
Fjöldi fyrirtækja í ríkiseigu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta fólk telur að verið sé að "hrifsa fyrirtækin frá eigendum sínum" með því að ganga að veðum þeirra.
Auðvitað vonaðist Einar að skuldir fyrirtækja hans og fjölskyldu hans yrðu felldar niður. Það var nú veik von að bróðursonur hans, formaður sjálfstæðisflokks, yrði forsætisráðherra
Karma (IP-tala skráð) 19.5.2009 kl. 14:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.