29.6.2009 | 18:16
Íslensk sendinefnd til Norður-Koreu.
Ég er að velta því fyrir mér, hvort ekki sé kominn tími til, að Jóhanna Sigurðardóttir sendi nefnd til Norður-Koreu. Verkefni nefndarinnar yrði að kynna sér, hvernig stjórnvöld geti haldið þegnunum í krumlum örbirgðar og neyðar árum saman. Og svo, hvernig halda eigi aftur af óróa í samfélaginu. Þetta mál er mjög aðkallandi nú þegar verið er að steypa þjóðinni fram af brúninn efnahagslega undir handleiðslu IMF (International mother f....). Formaður nefndarinnar gæti verið Hrannar B. Arnarson, enda hefur hann einkar næmt auga fyrir stjórnunarstíl málsmetandi manna!
Þannig geti ríkisstjórnin tekið upplýsta ákvörðun um framtíð þjóðarinnar!
Getum staðið við Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:17 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.