8.7.2009 | 22:09
Þetta þolir nú varla dagsljósið?
Þannig að það er kannski best að segja sem minnst!
Eða hvað, Þór Sigfússon og Tryggvi Þór og Wernarsynir? Voruð þið ekki búnir að segja að allt væri eðlilegt með rekstur Sjóvár? Hvar er lögreglan? Er ekki vaninn að brotlegir séu settir í varðhald meðan rannsókn fer fram? Eða eru kannski allir saklausir í málinu og enginn grunaður um neitt? Er hægt að setja eitthvert stöndugasta fyrirtæki landsins á höfuðið í eiginhagsmunaskyni? Og enginn grunaður um neitt?
Þetta hefur nú verið meiri veislan!
16 milljarðar inn í Sjóvá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:17 | Facebook
Athugasemdir
Rannsóknarblaðamenn hafa verið duglegir við að upplýsa hin ýmsu fjársvikamál mánuðum saman. Þjóðin veit um grímulausa þjófnaði og rán og veit um yfirhylmingu og hverja er verið að verja. Vanhæfir embættismenn á öllum varðstöðvum hafa klúðrað blátt áfram öllu sem þeim var treyst fyrir og borguð ofurlaun. Enginn þessara skíthæla fær svo mikið sem áminningu!
Árni Gunnarsson, 9.7.2009 kl. 11:58
...látum þá beygja sig eftir sápunni á Litla-Hrauni!
Auðun Gíslason, 9.7.2009 kl. 12:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.