11.7.2009 | 13:22
Eru Íslendingar 320.000 eða 3.200?
Mér flaug þessi spurning í hug, þegar ég las í morgun frétt um fjölskyldutengsl. Einhver, kannski Þráinn Bertelsen, sagði einhvern tíma að Íslendingar hlytu að vera miklu fleiri en 300.000, kannski 500.000-1.000.000 miðað alla verslun í landinu (minnir mig).
Ég held að Íslendingar séu varla fleiri en 3.200 miðað við ættar- og fjölskyldutengslin, sem dúkka upp í sambandi við ráðningar og skipanir í ýmis störf hér á landi. En auðvitað er þetta bara klíkusamfélagið, ein af birtingarmyndum spillingarinnar og siðleysisins, á Íslandi!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:41 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.