5.8.2009 | 12:04
Þekkir greinilega ekki Íslendinga!
Venjulegt fólk með venjulega mannskosti, einsog t.d. hugrekki og baráttuhug væri fyrir löngu búið að hrista elítuna ofanúr trjánum! Langlundargeð Íslendinga er að verða þeirri versti ókostur!
Stjórnmálaelítan er að makka um Icesave málið fyrir luktum dyrum. Hún þorir ekki að hafa þingið starfandi. Nefndardagar eru framlengdir aftur og aftur. Stjórnmálaelítan er í hráskinnaleik með framtíð þjóðarinnar, barna og barnabarna. 68% þjóðarinnar mælist á móti því að við göngumst undir Icesave-okið.
Hvað gera þessi 68% þjóðarinnar? Sem eru á móti Icesave-okinu. Mætir það á Austurvöll til að mótmæla því að þingið samþykki að skerða lífskjör þjóðarinnar með því að fallast á Icesave-okið? Nei, nei! Það situr heima og hefur það huggó í von um að stjórnmálamenn taki réttar ákvarðanir! Jafnvel þó að slíkt megi teljast til meiri háttar viðburða.
Þetta langlundargeð? Er það ekki bara hugleysi og leti? Er þjóðin bara ekki upp til hópa lurður og aumingjar?
Hannan bloggar um Ísland og ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:10 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.