30.8.2009 | 17:18
Hin takmarkaða lýðræðisást Bjarna EnnEins.
Forsetinn á að staðfesta Icesave
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins vill að forseti Íslands staðfesti lög um ríkisábyrgð vegna Icesave og telur að forsetinn eigi reyndar aldrei að ganga gegn vilja Alþingis.
Nú er verið að safna undirskriftum á vefnum kjósa punktur is við áskorun til Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands um að staðfesta ekki nýsamþykkt lög Alþingis um ríkisábyrgð vegna Icesave samninganna við Breta og Hollendinga.
Í gær höfðu á sjöunda þúsund manns skrifað undir áskorunina sem verður afhent forsetanum á morgun. Ólafur Ragnar er eini forseti lýðveldisins sem synjað hefur lögum staðfestingar, en það gerðist þegar hann neitaði að staðfesta fjölmiðlalögin árið 2004. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir að forsetinn eigi að staðfesta lögin.
Ég er þeirrar skoðunar að hann eigi ekki að beita þessari heimild og er reyndar þeirrar skoðunar að í það eina skipti sem henni hefur verið beitt hafi ekki verið réttur grundvöllur fyrir þeirri beitingu," segir Bjarni. Hann sé á móti því að forsetinn beiti synjunarvaldinu.
Mér finnst það eiga sérstaklega við núna vegna þess að hér er meirihlutaríkisstjórn sem hefur klárað málið og það á ekki að fara gegn þinginu," segir Bjarni Benediktsson.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:28 | Facebook
Athugasemdir
Lýðræðið hefur alltaf verið þyrnir í augum Sjallanna. Enda hefur fáum tekist betur að forðast það en þeim.
Árni Gunnarsson, 30.8.2009 kl. 21:18
Sýnir vel tvískinnungshátt sjálfstæðismanna
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 30.8.2009 kl. 21:58
ERU EKKI ALLIR ÞESSIR FLOKKAR Á ÞINGI AÐ DREPAST ÚR TVÍSKINNUNGI.
Auðun Gíslason, 31.8.2009 kl. 21:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.