Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis um þjófa og þjófsnauta, og fleiri samseka.

Í sjálfumgleði minni sem Íslendings hef ég verið nokkuð ánægður með skýrsluna, þó ég ætli mér ekki að fara fjalla um hana í stórum stíl.  það sjá aðrir um, og sumir í þeim tilgangi að hvítþvo sjálfa sig eða Flokkinn sinn.

Nú fer ég að efast um ágæti skýrslunnar eftir að William K. Black lýsti því hversu bláeygir skýrsluhöfundar eru gagnvart hinum meintu glæpamönnum, sem áttu bankana, stjórnuðu þeim og störfuðu í þeim!  Þeir hafi rænt bankana vafningslaust undir vökulu eftirlit opinberra embættismanna með samþykki og velþóknun stjórnmála- og embættismannaelítunnar.  Ýmsir hafa þegið styrki og fengið himinhá lán hjá glæpaklíkunum.  Í minni orðabók eru slíkir þjófsnautar, og þeir sem snúa blinda auganu að glæpsamlegu framferði samsekir!  Og sumir eru hvorutveggja þjófsnautar og samsekir.

***

Stundum skellir maður uppúr við lestur blaðanna.  það gerðist í morgun, þegar ég las forsíðufrétt Fréttablaðsins um tryggingasvik.  Það segir m.a. annars:  "Páll Sigurðsson, sérfræðingur hjá Sjóvá, segir sviðsetta árekstra og þjófnaði vandamál hér á landi."  Þetta er einsog að nefna snöru í hengds manns húsi hafandi sögu Sjóvár í huga!  Tryggingasjóður Sjóvár var tæmdur, sem kunnugt er, vafningslaust og með Vafningi Engeyjarættarinnar!

***

Neðar á síðunni segir svo Guðlaugur Þór Þórðarson, að hann hafi ekki hugleitt að segja af sér.  Þó ekki væri!  Og að ekki sé víst að hann sé styrkjakóngur stjórnmálanna.  Sem er náttúrulega aðalmálið!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikta E

Auðun - þú hefðir nú átt að nefna styrkjadrottningu og styrkjakóng Samfylkingarinnar - Steinunni Valdísi og Helga Hjörvar - þá hefði mér fundist pistillinn þin bara góður.

Benedikta E, 3.5.2010 kl. 14:10

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Samfylkinguna?  Hversvegna?  Ekki er ér neitt tengdur því bixi!  Annars ræð ég hverja ég nefni á nafn eða hvað ég skrifa yfirleitt um hér!  Ekki Benedikta E eða aðrar klappstýrur þjófaflokksins!

Auðun Gíslason, 3.5.2010 kl. 15:52

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mesta athygli vakti nú hjá mér hin langa skýrsla Guðlaugs Þ. í Fréttblaðinu þar sem hann tók eigið siðferði til umfjöllunar. Mér hafði nefnilega alveg sést yfir þann mikilvæga þátt í þessu mikla fjaðrafoki út af milljónunum sem fólk þiggur í prófkjörum.

Þetta er bara kostnaðurinn við lýðræðið!

Mikið óskaplega leggja fjármálafyrirtæki og atvinnurekendur mikið af mörkum til að treysta lýðræðið á Íslandi.

Árni Gunnarsson, 3.5.2010 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband