Hæstaréttarbyltingin býður uppá möguleika fyrir fólk.

Kannski næsta bylting á Íslandi verði vatnsbylting!  Við höfum á stuttum tíma fengið tvær byltingar ef má orða það þannig.  Fyrst Búsáhaldabyltinguna og svo nú þessa byltingu, sem Hæstiréttur setti af stað.  Rétturinn hefur vikið til hliðar þeirri "heilögu" reglu að fjármagnseigendur og bankarnir eigi allan rétt.  Fólkið engan!  Það sem meira er, að verið getur að dómur Hæstaréttar verði það "boost" fyrir efnahagslífið sem ríkisvaldið hefur tregðast við að setja af stað!  Það verður meira fjármagn í umferð, neysla og eftirspurn verður meiri!  Og setji jafnframt af stað öldu lagfæringa, sem kallað hefur verið eftir, á öðrum skuldbindingum almennings.  Sú verður krafan!  Það er komin sprunga í glerhúsið!  Ein leið til að binda enda á efnahagskreppu er að auka peningamagn í umferð (Bill Still t.d.).  Lagfæringar á lánakjörum almennings gæti einmitt verkað sem leið til þess.  Ekki hefur mátt gefa efnahags- og atvinnulífinu inn, því þá hefði atvinna aukist.  Það eitt og sér hefði gert réttinn súran á metseðlinum.  Eignaupptakan hefði verið trufluð vegna þess að fólk í fullri vinnu getur greitt af lánunum sínum.  Það mátti ekki gera neitt fyrr en eignaupptakan væri um garð gengin!

Ríkisstjórninni er vandi á höndum!  Dómur Hæstaréttar truflar nefnilega eignaupptökuna, sem er einn af föstu réttunum á matseðli AGS.  Og alltaf í boði! Þessvegna truflar dómurinn áætlun AGS.  Þessi matseðill AGS hefur líka inni að halda einkavæðingu auðlinda.  Þess vegna mátti ekki afnema Vatnalögin frá 2006.  Þessvegna voru ekki tilbúin ný vatnalög í iðnaðarráðuneytinu, því aldrei stóð annað til en að 2006 lögin tækju gildi.  Eignaupptaka á eignum þjóða er fastur réttur á matseðli AGS.  OG eignaupptaka á heimilunum er þar líka reglulega í boði.  Nú er sem sé áætlun AGS í uppnámi, þannig séð!  Og ráðamenn slegnir ótta


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Og nú vill Össur urriðafóstri víkka út leppstjórn AGS á Íslandi og býður til viðræðna með fyrirvara um samþykki Steingríms og landstjóra AGS.

Þá kemur mér í hug maðurinn sem var að bjóða í brúðkaupið sitt en miklar vorleysingar höfðu torveldað allar leiðir milli bæja:

"Þið ráðið hvort þið komið en drullan er óskapleg!"

Árni Gunnarsson, 20.6.2010 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband