9.6.2009 | 16:58
Kópavogur ehf.
![]() |
Hugsanleg brot á lögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.6.2009 | 14:13
Nei takk!
Þetta er orðið meira en gott hjá ykkur, kæru Sjálfstæðismenn! Fyrir mína hönd, og minnar litlu fjölskyldu, afþakka ég hér með allar ykkar efnahagstillögur, sem og aðrar uppástungur um hvernig við eigum að haga lífi okkar hér á heimilinu! Það er komið nóg! Miklu meira en nóg!
Ef þið kunnið að skammast ykkar skuluð þið pakka saman og flytja einhvert þar sem enginn hefur áður af ykkur heyrt og ykkar afrekum! Hér er alveg komið nóg! Miklu meira en nóg!
Veriði sæl og fariði vel! Og takk fyrir ekki neitt!
![]() |
Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram efnahagstillögur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2009 | 17:19
Leið Sjálfstæðisflokksins til niðurstöðu. Hversu trúverðugur er formaður Sjálfstæðisflokksins?
![]() |
Öll óvissa á kostnað Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.6.2009 | 17:24
Ys og þys útaf engu? Stjórnarandstaðan komin að niðurstöðu í Icesafe-deilunni langt á undan samninganefndinni!
Þingmenn, einkum délista og framsóknar, hafa farið mikinn í þinginu í dag, og virtust vera komnir að niðurstöðu í Icesave-samningunum langt á undan samningamönnum Íslendinga, Hollendinga og Englendinga. Var sú niðurstaða þeirra byggð á þeirra eigin hugarórum eingöngu og óljósum vangaveltum Moggans. Og auðvitað urðu þeir æfir útaf niðurstöðunni. Steingrímur J. kom alveg af fjöllum, að því er virtist, enda fer hann með hið opinbera samningsumboð sem alþingi veitti ríkisstjórninni í vetur. Stjórnarandstaðan fór einfaldlega framúr öllum væntingum á þingi í dag. Dario Fo hvað?
P.s. Af einhverjum ástæðum sakna ég alltaf Árna Johnsen þegar Jón Gunnarsson tekur til máls.
![]() |
Steingrímur fær fullt umboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |